Bara bensí­n

var slagorðið sí­ðast þegar mönnum ofbauð samráð olí­ufélaganna og okur. Þá átti bara að kaupa bensí­n hjá olí­ufélögunum en ekki aðrar vörur. Núna gengur tölvupóstur um netheima þar sem fólk er hvatt til að eiga ekki viðskipti við N1 og Shell (afhverju þá ekki lí­ka Orkuna og Egó?). Ég ætla að fara eftir þessu hvoru tveggja. Það er reyndar ekki sérstaklega út af þessum tölvupósti. Ég hef ekki keypt bensí­n hjá öðrum en Atlantsolí­u í­ háa herrans tí­ð (nema þegar ég er staddur einhvers staðar þar sem enga Atlantsolí­u er að finna). Ég reyni lí­ka að kaupa helst aldrei neitt á bensí­nstöðvum nema þvott hjá þvottastöð N1s stöku sinnum. Hins vegar hefur Atlantsolí­a valdið mér vonbrigðum. Verðið hjá þeim er aldrei neitt frábrugðið hinum olí­ufélögunum. Hins vegar er það ákveðið prisipp hjá mér að ef ég get komist hjá því­ skipti ég ekki við menn og fyrirtæki sem hafa árum saman svindlað á mér.