af verstu gerð má finna hér. Reyndar gleymir höfundur af einhverjum ástæðum öllum þeim palestínsku ungmennum og saklausu borgurum sem ísraelski herinn hefur myrt í gegnum tíðina. Eitthvað förlast honum líka þegar hann segir: „þessir hryðjuverkamenn vilja stofna ríki á ísraelskri jörð“. Ef ég man rétt voru það ísraelskir hryðjuverkamenn sem stofnuðu ríki á palestínskri jörð. Hins vegar er ég 100% sammála honum um eitt: „þeir [palestínskir hryðjuverkamenn] ætla sér að troða mannréttindum og lýðræði fótum líkt og venjan er í flestum ríkjum sem umlykja ísrael.“ Því miður er virðing fyrir mannréttindum og lýðræði ekki hin sterka hlið öfgatrúaðra íslamista.