þetta árið. ístæða þess er náttúrulega sú að ég var að byrja í nýrri vinnu í júní og hef þ.a.l. ekki unnið mér inn neinn frítökurétt. Það var lögð áhersla á það aða ég hæfi störf sem fyrst og í byrjun júní var ég því að vinna á tveimur stöðum í einu. Þetta finnst mér alls ekki jafn hræðilegt og margir gætu haldið.
Vissulega var það stór kostur við kennarastarfið hvað sumarfríið var langt en einhvern veginn fannst mér það alltaf of langt og var farið að dauðleiðast þegar leið á júlí. Ég talaði alltaf fyrir því að kennsluskyldan yrði lækkuð, skóladagur nemenda styttur og skólaárið lengt, þ.e. vinnutími kennara yrði ekki lengdur heldur dreift á fleiri vikur. Þannig mætti minnka álagið í starfinu sem er gífurlegt. Ég gekk samt aldrei hart fram í því í starfi mínu fyrir BKNE og FG að reyna að breyta þessu enda veit ég að þetta er mikil minnihlutaskoðun innan stéttarinnar.
Þrátt fyrir að eiga engan frítökurétt er ég samt búinn að taka mér viku frí í júní og hyggst gera það sama í júlí. Minn nýi vinnuveitandi ætlar meira að segja ekki að draga þessar vikur af mér í launum heldur skulda ég tvær vikur næsta ár. Það þýðir bara að ég fæ fjórar vikur í sumarfrí næsta ár í staðinn fyrir sex.
Ég er því mjög ánægður með hvað ég tek stutt sumarfrí í ár.