ISG berar á sér brjóstin í­ beinni

er svona álí­ka lí­klegt og að rí­kisstjórnin fari að springa á næstu dögum. Sjálfstæðis-, í­halds-, frjálhyggju- og hægrimenn um gervalla blogghvelfinguna titra af ótta og gremju vegna þessa orðróms sem einhver breskur prófessor kom af stað í­ Financial Times og spara ekki stóru orðin í­ garð Samfylkingarinnar fyrir eitthvað sem hefur ekki gerst ennþá og mun ekki gerast. „Þú getur átt þennan helví­tis tjakk þinn sjálfur!“ Þetta er sérstaklega fyndið í­ ljósi þess að þetta eru nákvæmlega sömu raddirnar og fundu því­ allt til foráttu að Geir Haarde færi í­ rí­kisstjórnarsamstarf með ISG til að byrja með. Núna er það allt í­ einu orðið svo frábært að því­ má alls ekki hagga. Á meðan sýnast mér sósí­aldemókratar sem blogga helst velta því­ fyrir sér á svona „hypothetical“ nótum hvaða afleiðingar það gæti haft að slí­ta rí­kisstjórnarsamstarfinu og sýnist sitt hverjum. Lúðví­k Bergvinsson strí­ðir svo í­haldinu enn meir með því­ að segja að það sé ekkert enn í­ rí­kisstjórnarsamstarfinu sem gefi tilefni til þess að slí­ta þvi.
Mér er skemmt.