Byrjar ekki vel

fyrir BYR. Þegar ég var í­ menntaskóla stofnaði ég reikning í­ Iðnaðarbankanum vegna þess að það var útibú beint á móti skólanum mí­num. Ég hafði svo sem ekki yfir neinu að kvarta í­ þeim viðskiptum. Sí­ðan sameinaðist Iðnaðarbankinn Verslunarbankanum, Alþýðubankanum og útvegsbankanum og til varð Íslandsbanki sem nú heitir Glitnir. Mjög fljótlega fór að bera á skí­tlegu eðli þess fyrirtækis og eftir að ég og konan mí­n ákváðum að hafa fjármál okkar ekki aðskilin færði ég mig yfir í­ Spron þar sem hún var í­ viðskiptum. Þar lét ég leggja inn laun mí­n þangað til ég fór að kaupa mér í­búð á Akureyri. Þá var ekki nógu hentugt að vera í­ viðskiptum við SPRON sem Kaupþing er búið að kaupa núna, heldur færðum við hjónin okkur yfir til Sparisjóðs Norðlendinga. Við höfum í­ raun ekkert þurft að kvarta yfir þjónustunni þar. Hún hefur verið eins og í­ flestum öðrum bönkum. Sí­ðan gerðist það að Sparisjóður Norðlendinga sameinaðist BYR og nú ætlar Glitnir að kaupa BYR. Þá lí­tur út fyrir að ég verði aftur kominn í­ viðskipti við þetta skí­tafyrirtæki sem ég flúði fyrir mörgum árum sí­ðan. Það lí­st mér ekki á. Mér lí­st heldur ekki á að þurfa að eiga við Kaupþing eða Landsbankann og ég treysti því­ ekki að færa mig yfir til einhvers huggulegs sparisjóðs eins og Sparisjóð Húnaþings-vestra, þar sem ég á reikning, eða Sparisjóðs Ólafsfjarðar, þar sem BKNE hefur sinn reikning, vegna þess að maður veit aldrei hvenær einhver hinna stóru og ljótu kaupa þá. Hvað er hægt að gera ef maður vill ekki vera í­ viðskiptum við þetta lið en er með lán, greiðslukort, greiðsludreifingu o.s.frv. Er maður fastur í­ neti bankanna eða er hægt að flýja einhvert?
(Sögnin að byrja þýðir upphaflega að fá byr í­ seglin).