Fótboltablogg! Aldrei hélt ég að ég ætti eftir að blogga um fótbolta. Þegar ég fór að horfa á sjónvarpið í dag var hins vegar verið að sýna leiki úr ensku knattspyrnunni á Skjá einum og horfði ég í smástund þar sem það voru Ólympíuleikar á RúV og ekki strandblak kvenna. Smám saman rifjaðist samt upp fyrir mér hvað það er leiðinlegt að horfa á fótbolta svo ég slökkti bara og fletti síðan úrslitunum upp á textavarpinu núna áðan. Ég er nefnilega í þeirri undarlegu aðstöðu að þola ekki íþróttir en halda með þremur liðum!
Ég ólst upp í Hafnarfirðinum og þar var (og er) starfandi íþróttafélagið FH eða Fimleikafélag Hafnarfjarðar. Með þessu liði héldu Hafnfirðingar, meira að segja þeir sem ekkert fylgdust með íþróttum. Þegar ég eltist frétti ég líka af fyrirbærinu Haukum sem áttu víst að vera annað íþróttafélag þarna í bæ en enginn tók alvarlega þar sem þeir voru svo lélegir í öllu. Að vísu voru þeir góðir í körfubolta en það leit nú enginn heilvita maður á sem íþrótt. Nú er staðan sú að Haukarnir hafa verið betri en FH í handbolta í áraraðir og það þykir jafnvel eðlilegt í Hafnarfirði að viðurkenna að halda með þeim. Þetta kann að koma fólki spánskt fyrir sjónir, t.d. það að ég sem fylgist helst ekki með íþróttum skuli vera að velta þessu fyrir mér.
En sjáið nú til. Síðasta haust flutti ég til Akureyrar og komst þá fljótlega að því að hér er ekki starfandi eitt íþróttafélag eins og ég hafði alltaf haldið (KA) heldur tvö. Já, það er víst líka til eitthvað félag sem heitir Þór og enginn hefur frétt af sem er ekki annað hvort Akureyringur eða íþróttanörd. Þessi var staða Hauka í Hafnarfirðinum þegar ég var að alast upp þar. Það getur verið að þessi óvild Hafnfirðinga gagnvart Haukum hafi stafað af því að þeir voru stofnaðir af Reykvíkingum, þ.e. Völsurum. FH-ingar hafa því alltaf kennt Völsurum um Hauka og þar af leiðandi er Valsandúð landlæg í firðinum (nema meðal Hauka að sjálfssögðu). Þetta er meira að segja sama nafn, Haukar og Valur, annað bara í fleirtölu. Svo spila þeir í eins búningum og hafa nánast eins merki. Þór á Akureyri spilar víst líka í svona búningum og það er nóg ástæða að mínu mati til að ekki sé hægt að halda með þeim.
Þegar ég flutti til Reykjavíkur þótti mér því eðlilegt að halda með KR. Sérstaklega þar sem þeir eru höfuðandstæðingar Valsaranna.
Á menntaskólaárunum var svo ítrekað verið að fiska eftir því með hvaða liði maður héldi í enska boltanum. Það fannst mér skrýtið, enda hélt ég ekki með neinu liði í enska boltanum. Til að losna auðveldlega frá svona spurningum ákvað ég að halda með Newcastle United. Fyrir því eru þrjár ástæður: a) Ég hafði komið til Newcastle og fundist það töff borg. b) Þeir spiluðu ekki í Valsbúningnum eins og hin þrjú liðin sem voru á toppnum á þessum tíma og c) Ég þekkti engann sem hélt með Newcastle og átti því ekki á hættu að lenda í einhverjum hópi sem ég kærði mig ekkert um eða aðdáendaklúbbi eða álíka hallærisheitum.
Ég er því í þeirri undarlegu aðstöðu að þola ekki íþróttir, finnast fótbolti hundleiðinlegur og vissi ekki einu sinni að Þór-Akureyri væri til! En vera samt eldheitur FH-ingur, KR-ingur og Newcastle-United stuðningsmaður!
Á móti kemur að ég hef gaman af úrslitum og tölfræði. Er það ekki líka bara það sem knattspyrna snýst um? Hvernig úrslit hafa áhrif á innbyrðis stöðu liða, hvernig markatala getur skipt máli o.s.frv.?
Ég held ég bloggi ekki aftur um fótbolta í bráð.