109303883354138625

Arðsemi náms var til umfjöllunar í­ útvarpinu áðan. Ég hélt að kannski ætti að ræða um það vegna yfirvofandi kennaraverkfalls hversu mikil verðmæti færu í­ súginn á meðan á því­ stæði en nei það var verið að fjalla um hvað fólk græddi á námi. Kom auðvitað í­ ljós að læknarnir græddu mest, svo verkfræðingar og svoleiðis lið. Þar á eftir voru iðnaðarmenn en kennarar og aðrar uppeldisstéttir voru neðarlega á lista.
Ég fór að velta því­ fyrir mér að ef það yrði reiknað út hversu mikil arðsemi samfélagsins er af ákveðnum stéttum, þá hlytu kennarar að verða þar ofarlega á blaði. Nám, fyrst í­ leikskóla og svo grunn- og framhaldsskóla og jafnvel í­ háskóla eða iðnskóla, er jú undirstaða þess að verða nytsamur þjóðfélagsþegn. Kennarar eru því­ (eins og lí­klega margar aðrar stéttir lí­ka) undirstaða og grundvöllur nútí­malegs samfélags. Það er auðvitað tilætlunarsemi af mér að ætlast til þess að það endurspeglist í­ launaumslaginu mí­nu. Kannski gerir það það lí­ka? Það er jú staðreynd að fólk í­ undirstöðuatvinnugreinum, s.s. landbúnaði og fiskvinnslu, er lægst launaða fólkið í­ landinu. Er það ekki augljóst að forstjóri Straums skapar mun meiri verðmæti í­ þjóðfélaginu en bóndi í­ Fljótunum, fiskverkunarmaður í­ Ólafsví­k eða kennari á Akureyri? Þótt það séu þeir sí­ðarnefndu sem fæða og fræða hann …
Góða nótt.