Fyrsti verkfallsdagurinn liðinn (þ.e. vinnutíminn). Við opnuðum verkfallsmiðstöðina í Sunnuhlíð og funduðum með trúnaðarmönnum fyrir hádegi. Eftir hádegi opnuðum við fyrir hinn almenna kennara og á annað hundrað manns komu. SS (sjá síðasta pistil) virðist hafa einsett sér að koma fram með lygar og rangtúlkanir í sínum málflutningi. T.d. það að reikna þrjá og hálfan yfirvinnutíma á viku per kennara inn í kostnað við tilboð kennara um skammtímasamning. Þeir ljúga enn fremur um hækkanir síðasta samnings, tilboð sem lögð voru fram í vor o.m.fl. Um helgina lögðu þeir svo fram tilboð sem var verra en tilboð sem þeir lögðu fram í vor og það bendir nú ekki til mikils samningsvilja. Ljóst að SS hefur stefnt að verkfalli og telur að með því snúist almenningsálitið gegn kennurum. Sem betur fer sýnist mér af því að lesa blogg um víðan völl að það hafi ekki gerst. Eftir stendur að SS er rúin trausti og samningsvilja. Hafi sveitarfélögin einhvern áhuga á að ná samningum er réttast fyrir þau að skipta út þessum lygamörðum og setja inn heiðarlegt fólk ef það fyrirfinnst á sveitarstjórnarstiginu (a.m.k. ekki í meirihlutanum hér á Akureyri). Komi krafa á móti um að kennarar skipti um sína samninganefnd er það lítið mál enda fullt af kennurum sem eru viljugir til að semja um alvöru kjarabætur til handa starfsfélögum sínum!
Burtséð frá því. Ég ætla að fara að elda einhvern góðan brúðkaupsafmælismat handa okkur Gullu.