Ég er nú alveg að gugna á þessum fótbolta í kvöld. Gulla var líka að segja mér í gær hvað það væri góð tilbreyting að hafa mig heima á kvöldin. Það verður víst æfing á þórsdaginn og svo sýningar á freysdag og laugardag þannig að það væri kannski fullmikið að taka kvöldið í kvöld líka í sjálfan mig eftir undanfarnar vikur, svo á ég ekkert að fara í og það hlæja allir örugglega að mér og ég get ekkert í fótbolta og hef ekkert hreyft mig í u.þ.b. 15 ár og …..
Þæfð ull er farin að fara verulega í taugarnar á mér. Maður sér þetta í blöðum og á tískumyndum. Konur í fallegum kjólum og svo með einhverjar götóttar lufsur yfir axlirnar sem líta út eins og þær hafi verið hirtar úr næstu ruslatunnu. Mér finnst þetta ekki smart. Reyndar finnst mér þetta næstum því eins fáránlegt og pils og kjólar yfir buxur tískan sem tröllreið öllu hér um árið. Hver ákveður svona lagað?
Allir kíkja á Freyvang!