Ég var í 60. afmæli móður minnar í gærkvöldi og það var verulega flott veisla en af þessum sökum missti ég af aðalfréttinni. Það er búið að svipta BAR stigunum sem þeir unnu sér inn á Imola og setja þá í tveggja keppna bann! Eftir að hafa lesið mér til um þetta sýnist mér refsingin í hæsta máta hörð. Vissulega hefði bíllinn verið of léttur ef öryggistankurinn hefði verið tæmdur. Þar með er bílinn ólöglegur í þessari keppni og því líklegast eðlilegt að taka stigin af BAR. Öllum kemur hins vegar saman um að þetta sé túlkunaratriði á reglunum og ekki ásetningur hjá BAR að svindla og þess vegna finnst manni þetta keppnisbann dálítið svakalegt. Eitt sinn gerðist það hjá mínum mönnum að plata sem er undir bílnum reyndist of hátt frá jörðu að lokinni keppni. Hún hafði eyðst eða skekkst eða færst til meðan á keppninni stóð. Fyrir þetta missti MacLaren stig úr þeirri keppni en þeir voru ekki dæmdir í keppnisbann. Svona við fyrstu skoðun virðst þetta nokkurn vegin sambærileg tilvik.
Eins og stendur lítur líka út fyrir að Verkamannaflokkurinn hafi unnið þriðju kosningarnar í röð í Bretlandi. Það er slæmt en kosningakerfið í Bretlandi virðist ekki bjóða upp á annað. íhaldsmenn eru ókjósanlegur og Frjálslyndir hafa ekki nokkurn möguleika á að ná meirihluta. Það er undarlegt að flokkur með yfir 20% fylgi skuli ekki fá nema u.þ.b. 13% Þingsæta. Meðan þetta kerfi er við lýði er ekki að vænta að nokkur flokkur komi til með að skáka öðrum stóru flokkanna tveggja (Frjálslyndir eru raunar ekki það mikið minni en íhaldsflokkurinn hvað fylgi varðar en fá mun færri þingmenn vegna kjördæmakerfisins).
Læt þetta nægja í bili.