111556581748036843

Það verða tvö blogg í­ dag þar sem ég missti af Eurovisonþættinum í­ gærkvöld og var að horfa á hann áðan. Fyrst ætla ég samt að fjalla um formúluna.
Það var gaman að sjá Raikkonen taka þetta. Hann hafði samt e.t.v. of mikla yfirburði frá upphafiþví­ maður bjóst ekki við að MacLaren kæmu svona sterkir til leiks. Hins vegar virðast engir nema MacLaren hafa möguleika á að ógna Renault. Maður var að vona að Toyota næði því­ en þrátt fyrir að hafa átt sí­na bestu keppni hingað til þá náðu þeir ekki að skjóta Alonso ref fyrir rass. Ferrari, sem leit út fyrir að vera að komast í­ sitt gamla form í­ sí­ðustu keppni, komu snautlega út í­ þessari og Bridgestone fær örugglega skammir frá þeim. Með þessu áframhaldi er þess ekki að vænta að Ferrari blandi sér í­ toppslaginn. Toyota á ekki eftir að verða í­ baráttunni við Alonso en Raikkonen gæti það þó svo að hann hafi e.t.v. komist of seint í­ gang. Maður verður bara að bí­ða og sjá til. A.m.k. er öruggt að Michael Schumacher eyðileggur ekki þetta tí­mabil fyrir manni eins og undanfarin ár.
Ég endurtek að mér finnst refsing BAR alltof ströng og í­ raun taka af þeim alla möguleika þetta tí­mabil. Þeir hefðu getað keppt við Toyota og Button er það góður ökumaður að hann hefði örugglega unnið sér inn stig í­ þessum tveimur keppnum sem hann missir af.
Svo verður bloggað um Eurovision seinna í­ dag.