Það hefur mikið átt sér stað unddanfarna daga. Fjölskyldan rauk til Reykjavíkur og við Gulla fórum á Duran Duran tónleikana. Það var náttúrulega alger snilld og sérstaklega gaman að sjá þegar Símon hinn góði tók sig til og stakk sér út í mannhafið og dró síðan einhverja snót upp á svið til að sjá um að kynna söngvara hljómsveitarinnar en áður var hann sjálfur búinn að kynna aðra meðlimi bandsins. Við lögðum aðeins frá höllinni (við Engjaskóla) í þeim tilgangi að lenda ekki í mestu örtröðinni í umferðinni. Á leiðinni þangað af tónleikunum ásamt einhverjum hundruðum annarra tónleikagesta sem höfðu lagt hér og þar um Grafarvoginn gengum við framhjá raðhúsalengju þar sem í einu húsinu, sem sneri stofuglugganum að göngustígnum þar sem allt þetta fólk var að ganga, var mjög svo dökkblá klámmynd í fullum gangi og einungis þunnar blúndugardínur fyrir glugganum. Það er ég viss um að húsráðandi hefur beðið eftir því að tónleikunum lyki áður en hann setti þessa sýningu í gang! En tónleikarnir voru hins vegar hvorki meira né minna en alger snilld.
í gærkvöldi fór ég svo með Degi og pabba á War of the Worlds. Hún var bara þokkaleg. Mér finnst samt svolítið ódýrt að halda sig við gamla plottið og gera ráð fyrir því að háþróaðar geimverur viti ekkert um bakteríur og vírusa og hafi ekki vit á því að sótthreinsa vatn á framandi plánetu áður en þær drekka það og andi að sér andrúmslofti okkar án þess að leiða að því hugan að það gæti verið þeim banvænt. Líka svolítið skrýtið að þegar geimverurnar komu upp úr jörðinni í byrjun myndarinnar þá lögðu þær allt í rúst en þegar aðalsöguhetjurnar komast loksins til Boston þá standa öll hús þar ósnert og allir íbúarnir eru bara hressir að hafa það notalegt heima hjá sér. Minnir meira á rafmagnsleysi í Firðinum í gamla daga en innrás úr geimnum. Afhverju í ósköpunum voru geimverurnar líka að geyma vígvélarnar neðanjarðar í milljónir ára áður en þær lögðu til atlögu? Afhverju umbreyttu þær ekki bara jörðinni strax? Er einvher ástæða fyrir þessu önnur en trúarbrögð Tom Cruise sem halda þessu víst fram. Þetta er reyndar stundum kallað Vísindakirkjan á íslensku sem er misskilningur því Scient á ensku þýðir nokkurn vegin hugsandi á íslensku. Hitt er annað mál að Scientology-kirkjan á ekkert skilt við vísindi eða hugsun. Þrátt fyrir þetta niðurrif mitt hérna þá fannst mér myndin allt í lagi.