Enn sýnist mér að ég hafi gert villu í talningu því þegar ég tel póstana á dagatalinu kemst ég aldrei nema upp í 19. Þetta blogg bætir því úr um það.
Það væri reyndar snautlegt blogg að skýra einungis frá þessari villu í talningu og þess vegna ætla ég að láta móðan mása aðeins um reynslu mína af þessu blogg-maraþoni. Ef hægt er að kalla 20 færslur maraþon en til þess ber að líta að þær voru margar frekar langar og engin undir góðu meðallagi.
Það merkilega er að ég lenti aldrei í vandræðum við að finna eitthvað til þess að blogga um. Allt voru þetta færslur sem hefðu alveg getað fæðst á venjulegum degi en þó bloggaði ég kannski um eitthvað sem ég hefði ekki fært í letur annars. Þannig má t.d. nefna færsluna um stöðu skólastjórnenda í grunnskólum og markmið mín á nýju ári.
Þrátt fyrir þetta blogg-æði tókst mér að koma ýmsu í verk um helgina. útbúa auglýsingu fyrir fund sem BKNE ætlar að halda á miðvikudaginn í næstu viku, fara í innkaup, læra heilan helling, horfa á fyrirlestur (á enn eftir að horfa á einn vegna áður nefndra tölvuvandræða) og elda veislumat um helgina.
Nú er þessu hins vegar lokið að sinni. Ég stefni ekki á langt blogghlé að þessari hrinu lokinni en það er samt aldrei að vita.
BBíB