Síðast liðinn föstudag var leikritið Memento mori frumsýnt í Freyvangsleikhúsinu. Þetta var mjög sérstök frumsýning fyrir mig þar sem þetta er í fyrsta sinn sem ég hef verið í hlutverki leikstjóra í svona alvöru leikhúsi. íður hafði ég náttúrulega leikstýrt einhverjum nemendasýninum, bæði á Hvammstanga og í Giljaskóla.
Ég veit ekki hvað ég á að segja mikið frá þessu. Vísa bara á heimasíðu Freyvangsleikhússins.
Það hafði verið talað um það lengi innan leikfélagasins hve gaman það væri að taka sig til og gera eitthvað öðruvísi. Freyvangsleikhúsið hefur alltaf sett upp kabarett á haustin (í byrjun nóvember) og stórt og viðamikið leikrit eftir áramót (í lok febrúar). Hingað til höfðu menn talið að kabarettinn væri e.t.v. fyrir slíku framtaki, þ.e. að brjóta upp starfsemina með framsæknu leikverki sem sett væri upp að hausti til. Það var s.s. ekki fyrr en í haust að ég stakk upp á því við stjórnina að við myndum setja upp leikrit í október. Við gætum æft það í september og ef við frumsýndum 2. október gætum við náð fjórum sýningarhelgum og samt átt eftir hálfan mánuð í kabarett. Stjórnin tók vel í það og þetta fór allt af stað. E.t.v. blogga ég aftur síðar um hvernig það er að leikstýra, en mikið svakalega var gaman að fá að prófa að gera það.