Jæja, þá eru komin mánaðarmót og minn búinn að panta tíma hjá lækninum. Gulla einokaði tölvuna í gær svo að ég komst ekkert að. Tók samt myndir af kvöldmatnum og allt. Ég ætla að reyna að koma þessu inn í kvöld ef hún leyfir mér. Ég kom af stað fyrsta flokks fyrsta apríl gabbi hér í skólanum. Það stóð upp á töflu að leikfimikennarinn væri veikur og við þurftum að tilkynna bekkjunum okkar að leikfimin félli niður. Þau þurfa að ganga yfir í Glerárskóla í leikfimi. Ég tilkynnti í tveimur bekkjum að leikfimikennarinn væri ekki veikur og það yrði leikfimi. Það virtist ekki koma krökkunum neitt á óvart að það væri tilkynnt sérstaklega að kennari væri ekki veikur. Svo kom aðstoðarskólastjórinn náttúrulega og eyðilagði þetta allt saman fyrir mér, því hún gekk í bekki og tilkynnti um veikindin. Samt hafði ég verið svo ákveðinn þegar ég sagði þeim að það yrði leikfimi að sum trúðu henni ekki! Pælið í því. Ég hef enn ekki verið látinn hlaupa apríl í dag en kannski kemur að því. Aumingja konurnar sem rjúka niður á Stöð tvö til að fá ókeypis brjóstastækkun! Alltaf finnst mér jafn skrýtið að fólk hafi ekki varann á sér þennan dag.
P.S. Skrifiði nafnið ykkar og tölvupóstfang hér í kommentakerfið. Ég ætla að gefa gamla Duran Duran safnið mitt (plötur, plaköt og bækur) og hef ákveðið að draga úr þeim sem skrifa í komment!