Ég er viss um að fyrirsögnin úr Fréttablaðinu í gær þar sem Halldór ísgrímsson segist ekki hafa orðið var við neina óánægju innan Framsóknarflokksins verður flokkuð með heimsbókmenntum í framtíðinni. Hér er náttúrulega á ferðinni súrrealismi af bestu gerð. Þessi fyrirsögn staðfestir líka að Halldór hlýtur að vera ákaflega heimskur maður. Datt honum í hug að það dygði að neita bara að nokkur væri óánægður, þá myndu allir trúa honum? Auðvitað hlæja allir Framsóknarandstæðingar sig í svefn þessa dagana og ekki er fréttin í Fréttablaðinu í dag um að varaþingmaður Framsóknar segi að málið snúist ekki um jafnrétti til að draga úr kátínunni. Annaðhvort hefur maðurinn ekki hugmynd um hvað orðið jafnrétti þýðir eða hann er einfaldlega svona heimskur að hann skilur ekki að þegar kona sem er búið að nota sem gólftusku í ráðherrastól árum saman, sem hefur á bak við sig fleiri atkvæði en nokkur annar Framsóknarmaður (foringinn meðtalinn) og er þar að auki í stjórn flokksins er dömpað úr ríkisstjórn þá er það óvirðing við helming mannkyns. Líklega fleiri því ég býst við því að margir karlmenn upplifi þetta líka þannig að Framsókn sé með þessu að segja að konur séu vanhæfari en karlar, skipti minna máli og séu bara í stjórnmálum til að vera skraut í kringum karlana. Snýst málið ekki um jafnrétti? A.m.k. sé ég ekki að karl í sömu stöðu hefði þurft að hafa neinar áhyggjur af embættinu sínu.
Svo var viðtal við þennan Guðjón Ólaf Jónsson í útvarpinu áðan og hrokafyllra og leiðinlegra 19. aldarþenkjandi merkikerti hefur ekki heyrst þar lengi. Hann var líka augsýnilega búinn að átta sig á því að þessi yfirlýsing hans og grein á hrifla.is var pólitískt sjálfsmorð. Ætli hann átti sig á því að með því að útnefna írna Magnússon sem framtíðarleiðtoga Framsóknarflokksins fyrstur flokksmanna, áður en téður írni hefur gert neitt í pólitík annað en verða ráðherra fyrir greiðasemi Halldórs gegn vilja flestra flokksmanna, er hann væntanlega búinn að drepa pólitískan feril írna líka? A.m.k. veita honum þungt högg. Ég efast ekki um að núna safni Guðni og fleiri liði og pönkist vel á írna á næstunni.
Það er svona fólk eins og Guðjón Ólafur Jónsson og Dagný Jónsdóttir sem við þurfum meira af í Framsóknarflokkinn. Þá hverfur hann nefnilega fyrr!