Hugmynd mín um að FG reyni að gera samninga við litlu sveitarfélögin fyrst gengur víst ekki upp. Enda er það yfirlýst stefna Sambands íslenskra sveitarfélaga að stöðva alla þjónustu við sveitarfélög sem það gera. Ekki eingöngu það heldur líka þau sveitarfélög sem voga sér að borga umfram kjarasamninginn. Þjónusta þarna felst t.d. í launaútreikningi, rekstrarráðgjöf o.fl. Jafnvel gætu sveitarfélög sem hlaupa út undan sér átt það á hættu að missa framlag úr Jöfnunarsjóði. Það er því ekki furða að sveitarstjórnarmenn þegi þunnu hljóði þó réttlætiskennd margra þeirra sé eflaust misboðið. Miðstýring kjarasamninga kennara er því eingöngu á ábyrgð sveitarfélaganna.
Vegna þessa er kjarasamningur grunnskólakennara því hámarkslaun hvers kennara og í mörgum sveitarfélögum fæst ekki einu sinni borguð yfirvinna. Hér á Akureyri hafa kennarar því engan möguleika á því að vinna sig upp í launum með því t.d. að kenna umfram kennsluskyldu eða taka á sig störf í yfirvinnu. Þeim er makvisst haldið niðri í launum.
Þar af leiðir að byrjunarlaun grunnskólakennara sem er t.d. 26 ára eru 149.952 krónur. Þetta eru jafnframt heildarlaun því yfirvinnu og aukakennslu fær hann ekki. Þessi kennari fær kannski, ef hann er heppinn, þrjá flokka úr launapotti og þá verða heildarlaun hans 163.856,-. Hann á hins vegar ekki möguleika á hærri launum og raunar finnst mér ólíklegt að nýútskrifaður kennari fengi strax þrjá flokka úr potti.
Til samanburðar má geta þess að jafngamall hjúkrunarfræðingur sem vinnur ekki undir stjórn annarra fær í grunnlaun samkvæmt kjarasamningi hjúkrunarfræðinga 168.915,-. Það eru ekki há laun. Það eru hins vegar lágmarkslaun og hjúkrunarfræðingar gera svo stofnanasamninga við þá staði sem þeir vinna á. Megi þeirra kjör verða hin bestu.