114409832701426340

Ætli ég verði ekki að endurskoða það sem ég sagði í­ sí­ðustu viku um formúluna. Sí­ðasta keppni var vissulega mjög skemmtileg en ekki réttlætti hún ummæli mí­n. Renault og þá sérstaklega Alonso hafði verulega yfirburði og ljóst að ekkert lið í­ dag er með tærnar þar sem þeir hafa hælana. McLaren á möguleika á að ná þeim ef þeir bæta í­ á næstu vikum. Ferrari voru heillum horfnir og hvorki Honda né Williams eiga nokkuð í­ þessi tvö lið. Eins og er virðast því­ Renault vera lang bestir og McLaren lang næstbestir. Ég á ekki von á því­ að Toyota nái að halda þeim árangri sem þeir náðu í­ ístralí­u. Barichello er hins vegar alveg að klúðra málum hjá Honda og merkilegt hvað hann er miklu slakari en Button.
Núna kemur langt formúluhlé en að því­ loknu verður spennandi að sjá hvort eitthvað hafi breyst.