114418264976551515

Frá því­ um miðjan nóvember hef ég verið í­ DDV (De Danske vægtkonsulanter) og verið að reyna að glí­ma við aukakí­lóin. Jafnframt því­ hef ég haldið dagbók á netinu en samt meira bara svona fyrir sjálfan mig. í vigtun í­ dag kom hins vegar í­ ljós að ég er meira en hálfnaður miðað við upphaflegt markmið og því­ hef ég ákveðið að gera þessa dagbók opinbera til að halda mér betur við efnið í­ sí­ðari hálfleik. Staðan í­ dag er því­ sú að ég hef farið úr 127 kí­lóum í­ 103,5. Það er þyngdartap upp á 23,5 kí­ló. Vonandi gengur jafn vel með það sem eftir er niður í­ kjörþyngd. Opinberunin felst nú ekki í­ öðru samt en að setja tengil á hana hér við hliðina