í raun er alveg skelfilegt til þess að hugsa að nú séu tveir Eurovisionkynningarþættir búnir og ég er ekki enn farinn að blogga neitt um þá. Mér til afsökunar þá var fyrsti þátturinn um helgina sem ég var að ferma og ég missti af honum þangið til ég rak augun í hann í endursýningu á RúV+. Ég ætla samt að halda viðtekinni venju og blogga um lögin.
Armenía
Þetta land er lengst inni í Kákasusfjöllum og er að taka þátt í fyrsta sinn í ár. Ég átti alls ekki von á því að fá eitthvert svona boybandpopp þaðan en sú er einmitt raunin. Allt í lagi en voðalega óáhugavert samt. Gef þessu 2 stig.
Búlgaría
Þarna má heyra þjóðlega stemmingu í bland við vestræn áhrif og það er blanda sem virkar alltaf vel. Þó að lagið sé skárra en Loraine in the rain þá vantar samt eitthvað upp á. Kannski er það vælið í kallinum sem skemmir þetta fyrir mér. Gef þessu 3 stig.
Slóvenía
Hér kemur annar boysari en þessi er ákaflega sækó miðað við hinn. Lagið er svo sem sæmilega huggulegt og viðlagið hratt og fínt. Ekkert spes í gangi en ágætis Eurovision svo ég gef 3 stig.
Andorra
Þessi er flott. Gefur skít í hefðbundin viðmið og situr í aðeins of þröngum kjól á skítugum bar með sígarettu í munnvikinu og syngur „án þín“. Ég er líka hrifinn af þjóðum sem syngja ekki á ensku og þessi er bara frábær. Gef henni 5 stig.
Hvíta-Rússland
Ég hafði nú bara nokkuð gaman af þessu þó að útlitsdýrkunin í myndbandinu hafi verið nokkuð yfirdrifin. Stelpan er samt bæði sæt og getur sungið og lagið hvorki betra né verra en mörg svona Spice Girls lög.Ég gef 4 stig.
Albanía
Þetta er ágætislag. Þarna eru einnhverjar sekkjapípur og það eru mjög agressív hljóðfæri. Ég hef svolítið gaman af svoleiðis. Hins vegar er þetta ekkert voðalega grípandi eða eftirminnilegt að öðru leiti. Ég gef 2stig.
Belgía
Belgar þykja ákaflega sigurstranglegir í ár enda er lagið áheyrilegt og stelpan sem syngur voða sæt. Hún syngur bæði á frönsku og ensku (samt ekki nema eina setningu á frönsku heyrðist mér). Ég er ekki jafn hrifinn af þessu og alþjóð virðist vera. Minnir mig svolítið á bresku lögin í gegnum tíðina sem hafa oft verið mjög áferðafalleg en innihaldsrýr. Ég gef þessu 3 stig.
írland
Maður skilur nú bara ekki hvað er að koma fyrir íra þessi árin. Þetta lag hljómar eins og endalaust forspil að gömlu Phil Collinslagi en svo kemur aldrei powerbrake-ið. íkaflega langdregin bið og svo er lagið bara búið án þess að nokkuð hafi gerst. Ég gef þessu 0 stig.
Ég ætla að láta þetta nægja í bili. Ég blogga kannski um þáttinn sem var um síðustu helgi á morgun ef ég kemst til þess.
Annars líst mér ágætlega á Eurovision í ár. Það er reyndar lítið um lög sem verða mjög augljóslega ofarlega og þess vegna er þetta kannski meira spennandi en vanalega. Ég held að það sé svona 50/50 hvort Silvía Nótt kemst upp úr forkeppninni. í ljósi þess að bæði Tyrkir og Litháar eru með nákvæmlega sama húmor í gangi í sínum lögum gæti þó e.t.v. bent til þess að Evrópubúar muni hafa húmor fyrir Silvíu og það verður að segjast eins og er að lagið hennar er mun betra en bæði það tyrkneska og litháíska. Ég kveð þá að sinni.