Formúlan er heldur betur skemmtileg þessa dagana. Force India kemur hressilega á óvart í hverjum kappakstrinum á fætur öðrum og ég verð að viðurkenna að skilja ekki ákvörðun Fisichella að segja skilið við liðið til að gerast varaökumaður hjá Ferrari. Þar stendur Raikkonen sig hins vegar frábærlega og endurkoma Brawn er ánægjuleg eftir slakt gengi um miðbik vertíðarinnar. Sjálfum finnst mér líka gaman að sjá hvað McLaren eru að bæta sig mikið og grátlegt að Hamilton skyldi keyra út af á síðasta hring. Á móti kemur að hann er ekki í neinum titilslag og þessi stig skipta liðið í raun litlu úr því sem komið er. Þetta lofar hins vegar góðu fyrir næsta ár. Eina liðið sem olli vonbrigðum þessa helgi var Red Bull og svo virðist sem þeir muni ekki geta veitt Brawn mönnun raunverulega samkeppni. Alonso stendur sig líka ver í Renaultinum og að því er ég held betur en bíllinn í raun gefur tilefni til. Ljóst að hann væri langfremstur æki hann betri bíl. Það verður gaman að sjá hvort hann verði áfram hjá Renault á næsta ári. Það er orðrómur í gangi um að hann fari yfir til Ferrari og þá verða þeir með fimm ökuþóra, þ.e. Fisichella, Raikkonen, Massa, Badoer og Alonso. Badoer er og verður reynsluökumaður og líklegt að það hlutverk bíði Fisichello líka. Massa kemur örugglega inn sem aðalökumaður og þá þarf Raikkonen líklega að víkja fyrir Alonso. Það væri samt frekar undarlegt í ljósi þess hve vel Raikkonen er að aka þessa dagana. Eflaust enginn hörgull á liðum sem væru tilbúin til að fá hann til sín. Ætli það verði Raikkonen og Hamilton á næsta ári hjá McLaren? Kovalainen verður örugglega látinn fara, en ég væri spenntari fyrir því að sjá Rosberg taka hans sæti.