Beðið í ofvæni

Það er eitt og annað í gangi þessa dagana. Flest snýst um húsakaup því þannig er mál með vexti að við fengum tilboð í íbúðina okkar í fyrradag sem við gengum að. Svo ef það fer að óskum þurfum við að flytja út eftir þrjár vikur (úff…). Við fórum auðvitað hið snarasta á stúfana að athuga með draumahúsið, skoðuðum það aftur til að sannfærast endanlega og buðum í það í gær. Því miður verður maður víst að gefa eigendunum smá umhugsunarfrest, helst hefði ég viljað fá svar á klukkutíma, en það á að koma í síðasta lagi um hádegi í dag. Fingers crossed.