Ég hef stundum notað þetta til að benda nemendum mínum á að koma sér í mjúkinn, enn hefur enginn komið með epli. Í dag lofaði ég hins vegar einum fríi á mánudagsmorgun til að vinna í bakaríi ef hann kæmi færandi hendi með bollur handa mér! Það verður gaman að sjá hvort hann stendur við það.
Annars er afmælisbarn dagsins Óli bróðir – orðinn heil 26 ár. Til hamingju með daginn kallinn minn. Ég kem kannski bara færandi hendi með afmælisgjöf á línuna eftir tvær vikur.