Krúttleg stelpa

Sóley átti algjört móment í dag. Þegar við komum heim seinni partinn stóð pæjubíllinn hennar á gólfinu. Hún fór að stússast við hann og nema hvað, stóð á fætur og gekk fram og til baka með hann á undan sér. Ekkert smá fín. Og montbrosið sem kom á hana þegar við fórum að góla og gala. Sú var ánægð með sig. Við létum hana ganga lengi vel og það gekk gríðarlega vel. Mér liggur nú við að segja að hún hafi þurft að hlaupa því hún réð ekki alltaf við að keyra bílinn rólega. Frekar fyndið.

Pósturinn átti síðan klúður dagsins. Kom hér heim með pakka (frá Svíþjóð hef ég grun um), hefur greinilega dinglað og dyrabjallan ekki virkað, en síðan ekki söguna meir. Að minnsta kosti kom ég fram og þá var miði um að þeir hefðu reynt að bera út pakka rétt fyrir sex. Komm on! Hlusta til að athuga hvort það heyrist í bjöllunni!