Súkkulaðihúðuð

Jamm, eftir síðustu daga er ég að verða súkkulaðihúðuð að innanverðu. Aðallega með hvítu súkkulaði, ég er alvarlega dottin í það. Jumm. Verst og það er meira að segja verulega verst, að dónarnir í Góu eru hættir að framleiða besta súkkulaðið. Hvað varð um Lindor með appelsínu??? Það eru algjör svik að geta ekki fengið það lengur. Ég meina vá! Lindor með krókanti nær bara ekki sömu hæðum. Skamm skamm Helgi í Góu!