Nemandi sem ég nefndi fyrir helgi kom sterkur inn og mætti með hvorki meira né minna en átta bollur í morgun. Ég er búin að borða eina og hálfa – og gefa hálfa, fer þá bara með rest heim og sé til. Ég er að verða búin að fá nóg!
Vona að allir hafi horft á Ørnen í gærkvöld – hann Jens kom sterkur inn með íslenskuna sína. Ég sé samt ekki fram á að verða eins háð þessu eins og Krøniken eða Nikolaj og Julie – en það má vel skemmta sér yfir þessu og fyllast stolti yfir íslenska landslaginu.