Bersöglisvísur
Á Mjólkursamlagi Neskaupstaðar
ganga hlutirnir nokkuð hraðar.
Því þegar forstjórinn er á fundi,
þá fylla hinir kerin af brundi.
Hvernig getiði étið skyr? Hvernig getiði étið skyr?
Hvernig getiði étið sk-y-y-yr? Hvernig getiði étið skyr?
Bjarni Tryggvason
Á gær fór ég á Dónakvöld með trúbadornum Bjarna Tryggva á Vídalín ásamt Steinunni og tengdó. Tengdamamma er mikill aðdáandi Bjarna og ég lét til leiðast að mæta til þess að:
i) Berja jaxlinn augum í fyrsta sinn frá því á níunda áratugnum.
ii) Sjá nýju hárgreiðsluna hennar tengdó. – Hún er appelsínugul!
Eins og nafnið gefur til kynna, voru bara dónalög á lagaskránni hjá Bjarna. Þarna var einkum snúið út úr gamalkunnum dægurlögum og gamlir slagarar settir í nýtt samhengi – hvern hefði t.d. grunað að gamla sjómannavísan „Hann elskaði þilför hann Þórður“ væri hreinræktaður dónaskapur?
Inn á milli voru svo nánast nostalgískar klámvísur á borð við lagið um Fríðu sem átti engan vin. (Þeir sem kannast við lagið ættu að geta botnað þetta núna – meira skrifa ég hins vegar ekki á síðu sem börn og unglingar geta lesið…)
Bjarni er góður tónlistarmaður og bráðfyndinn ef hann vill með það hafa. Ekki get ég samt ímyndað mér að hann hafi skemmt sér í gær – til þess var salurinn alltof leiðinlegur og fólk að kjafta saman á sumum borðum meðan á spileríinu stóð. Tengdó sat ekki einu sinni út konsertinn. Hún var allsgáð og akandi. Sömu sögu er ekki að segja af dóttur hennar.