Stund milli stríða
Jæja, þá er best að nota tækifærið til að blogga úr því að ég hef tíu mínútur aflögu í vinnunni.
Ég veit ekki hversu oft ég hef verið spurður spurninga á borð við: „hvað gerir þú eiginlega í vinnunni?“ eða „koma nokkrir á þetta safn? Er þá nokkuð að gera hjá þér?“ – Vinir mínir og fjölskylda eru sannfærð um að ég hangsi á safninu daginn út og inn og telji á mér tærnar. Ekkert er fjær sanni.
Til að uppræta þennan misskilning í eitt skipti fyrir öll er því tilvalið að grípa niður í dagbók Minjasafnsins fyrir daginn í dag – fimmtudaginn 11. apríl:
8:30, starfsmenn mæta til vinnu. Þeir sjá að við gömlu rafstöðina, gegn götunnar, er rúta af stærstu gerð. Hópur unglinga stígur út og labbar inn í stöðina. Að heimsókn lokinni skunda kennararnir með 50 manna hóp að Minjasafninu. Þeir reynast vera úr Kvennaskólanum og hafa ekki gert boð á undan sér. Við tökum að sjálfsögðu vel í að lóðsa þau um Rafheima og riggum upp í hvelli kennslustund í rafmagnsfræði.
9:30, krakkarnir fara. Þá er hægt að snúa sér að verkefni dagsins – að endurskipuleggja sýningarbásinn um jarðlínudeildina. Hinn röggsami forstöðumaður safnsins felur Sigurði að útbúa hund með ljósaperu til að setja upp í jarðlínumannatjaldið sem verið er að reisa í sýningarsalnum. Gústi verktaki heldur áfram að þrykkja út flennistóru ljósmyndinni af múffulagningunni, pantar spjald til að líma hana á og snattast á meðan í að laga yfirlitsmynd af Elliðaárdalnum sem á að hengja upp fyrir framan eldhúskrókinn í næstu viku. Óli Guðmunds er niðursokkinn í að rissa upp díóðulýsingu sem gæti gert mikið til að lífga upp á tengimúffuna sem við erum að koma fyrir. Eftir hádegi skreppur hann í ljósleiðarafyrirtækið Dengsa til að kaupa díóður. Þórólfur er ekki í vinnunni í dag, hann var lánaður í húsvörsluna í hálfa viku til að leysa af í póstinum.
Á meðan á þessu stendur hefur forstöðumaðurinn djarfi í ýmsu að snúast.
a) Hann rexar í prentaranum í Kópavogi að klára að prenta út stóru myndina af tengimanninum í frosthörkunum
b) Hann samþykkir reikninga í bókhaldskerfinu
c) Hann skoðar hellubrot hjá Garðyrkjudeildinni til að setja umhverfis tjaldið
d) Hann skreppur upp á lager hjá Landsímanum til að sækja tréstoðir í tjaldið í stað ljótu stálstanganna frá Orkuveitunni
11:30, 6.V. úr Vesturbæjarskóla kemur í heimsókn. Þau fá tveggja klst. kennslustund hjá forstöðumanninum og Óla Guðmunds. Meðan á henni stendur læðist sá fyrrnefndi afsíðis til að halda áfram að skamma prentarann og blogga. Einnig þarf að semja við Pál VIðar um það hvernig best verði að útfæra móttökuna fyrir rafiðnaðarmennina á laugardaginn kemur. – Sigurður og Gústi fara í mat, aðrir svelta.
13:30-18:00, seinni partinn kemur Edda til að þrífa á safninu. Hún þarf væntanlega að fá beiðni fyrir hreinlætisvörum, auk þess sem það er orðið mjólkurlaust á svæðinu – sem sumum kaffidrykkjumönnum þykir vera afleitt.
Sigurður klárar vonandi hundinn í tjaldið og getur þá haldið áfram að skrá gömlu rafmagnsmælana. Á dag barst safninu gamall jafnstraumsmælir frá Norðfirði – öndvegisgripur!
Guðmundur Egilsson, sem starfar öðru hvoru sem verktaki við safnið, mætir vonandi. Þá verður hann gripinn í að finna sýningarfleka í kjallaranum sem hægt væri að setja upp í staðinn fyrir flekann um lagningu 30 kV-kerfisins 1952, sem búið er að flytja til í salnum. Annars er Guðnundur í því að skrá gamlar ljósmyndir frá byggingu írafossstöðvar. Um að gera að reyna að pressa alla þekkingu út úr gömlu mönnunum á meðan þeir halda fullum sönsum.
Gústi þarf að fara að klára Elliðaárdalsmyndina. Helst þarf að ná að fótósjoppa út leifarnar af gamla útivirkinu, sem ekki var búið að rífa alveg niður 1994 þegar myndin var tekin. Verst hvað gróðurfarið í dalnum hefur breyst mikið á þessum átta árum – en það þýðir ekki að fárast yfir því.
Óli Guðmunds talar við Dengsa sem fyrr segir. Hann verður líka að reyna að grynnka pínulítið á þessum uppsafnaða verkefnastabba í tengslum við Rafheima. Við erum að verða uppiskroppa með verkefnablöð á nokkrum básum og þau verður að endurskoða áður en nýtt upplag er sent í prentun. Þá eru krakkarnir búnir að slíta leiðslur á nokkrum stöðum og þar þarf að lóða upp á nýtt.
Forstöðumaðurinn er á barmi taugaáfalls. Eftirfarandi verkefni teljast öll brýn:
i) Útbúa auglýsingu fyrir Söguþingskver, Vegahandbókina og Atlanticu
ii) Fara í prentsmiðjuna í Kópavogi
iii) Klára að lesa yfir handritið að vatnsveitusögunni sem kemur út innan tíðar
iv) Laga til í salnum svo hann verði boðlegur á laugardaginn
v) Undirbúa fundinn á morgun vegna uppgjörs barnaráðstefnu OR
vi) Spá í ráðningu sumarstarfsmanns (sjá næsta blogg)
vii) Klára skýrslu Minjasafns fyrir árið 2001 – ekki síðar en fyrir föstudag
viii) Velja ljósmyndir í Minjasafns- og Rafheimabæklinga OR
ix) Svara klikkaða útlendingnum
x) Hitta Auði úr kynningarmálum og Steina úr Elliðaárstöðinni til að ákveða fyrirkomulag heimsókna í stöðina í sumar
xi) Finna út hvort fjárveiting fylgir rafmagnsbílnum sem verið er að gera upp (eða ekki)
xii) Koma reikningum á bókhaldsdeildina
xiii) Slá inn skýrslum um heimsóknir skólahópa í Rafheima
xiv) Undirbúa kynningu fyrir móttökuna á laugardag
xv) Borða súkkulaði, borga gamlar skuldir, slappa af í baði – og allt!
– Og svo tekst mér aldrei að telja nokkrum manni trú um að það þurfi að vinna á þessum vinnustað!