Þessar áleitnu spurningar…
Snörl, hóst og hnerr! Hvers vegna er ég svona kvefaður? – Eða öllu heldur, úr því að ég var byrjaður að vera kvefaður á fimmtudaginn – hvers vegna fór ég þá á barinn? Og – úr því að kvefið ágerðist bara við það, hvers vegna fór ég þá í partýið heima hjá Huginn (eins og lesa má um á ótal bloggsíðum). Og í þriðja og síðasta lagi – úr því að partýið og bjórþambið á 22 á eftir gerði ekkert annað en að auka á óhamingju mína og tryggðu að ég mátti vart mæla á UVG-fundinum á laugardaginn, hvers vegna í andskotanum drakk ég svona mikinn bjór í útskriftarboði Sveinafélags rafiðnaðarmanna sem haldið var hér á safninu í gærkvöld.
Nú hef ég aldrei þóst vera maður ósérhlífinn – þvert á móti kveinka ég mér yfirleitt undan öllum flensum og kvefi. En þetta er algjört met! Ég er viss um að ég er kominn með hita og mun ekki komast í vinnuna á morgun!
Það verður hálf-álkulegt að hitta félaga Hrafnkel úr miðnefnd SHA á næsta fundi. Hann nauðaði þessi reiðinnar býsn í mér að „heilsast að Glasgow-sið“, sem er slangur yfir að berja saman hausum. Eftir nokkurra mínútna kvabb lét ég til leiðast og skallaði manninn hraustlega. Hann vankaðist og fékk örugglega dúndrandi hausverk í kjölfarið. Er ég orðinn bulla?
* * *
Það er búið að vera stórmerkilegt að fylgjast með framvindu mála í Venesúela undanfarna daga. Fyrst eftir að Chavez var hrakinn frá völdum, þá stukku allir íslensku fjölmiðlarnir á kenningar hægripressunnar í BNA þess efnis að Chavez væri fylgislaus og að í raun væri það almenningur en ekki herinn sem hefði velt honum úr sessi. Þær skýringar virðast hafa verið skotnar í kaf – a.m.k. ef marka má fregnir af því að hann hafi komist aftur til valda og að herforingjarnir hafi hrokkið undan með skottið á milli lappanna.
* * *
Ég er enn ekki búinn að skila skattframtalinu mínu á netinu. Þar vefst aðallega fyrir mér að finna hvar ég get fært kostnað við húsaleigu á móti leigutekjum. Einhver góðhjörtuð sál sem les þetta mætti senda mér ábendingar í vinnuna (minjasafn@or.is).
* * *
Luton gerði bara jafntefli en Plymouth vann um helgina. Fyrir leikinn var Luton búið að vinna 12 leiki í röð. – Þetta þýðir að við vinnum ekki titilinn í ár, en förum upp út á annað sætið. Shit happens!
Verra gæti það þó verið. Ég gæti verið Wolves-maður eins og Palli. Úlfarnir eru líklega búnir að missa af því að komast beint upp og lenda í umspili. Það er fyndið að skítaliðið WBA hafi skotið þeim ref fyrir rass.
* * *
Ég er líka fúll yfir handboltanum. Hvernig er hægt að halda úrslitakeppni án Safamýrarstórveldisins? Framarar eru miklu betri en mörg þessara liða í úrslitakeppninni, en fyrstu umferðirnar reyndust dýrkeyptar.
* * *
Tengdapabbi var í bænum um helgina, í einhverri höfuðborgarferð starfsmannafélags Síldarvinnslunnar. Ekki get ég þó sagt að ég hafi hitt hann nema í mýflugumynd og við skiptumst ekki á mörgum orðum. Hann er lítið gefinn fyrir að blaðra um allt og ekkert. Sennilega gæti ég lært margt af honum í þeim efnum.