Metúsalem og Pikkarónarnir…
Ekki nennti ég að horfa á kosningaþátt Egils Helgasonar í gær, enda fórum við Steinunn í kaffiboð til Aðalsteins og Salnýjar í staðinn. Maður varð nú pínulítið skúffaður að hafa misst af öllu fjörinu eftir að forsíða Fréttablaðsins upplýsti að Metúsalem og ístþór Magnússon hafi reynt að storma inn í stúdíóið til að taka yfir útsendinguna.
Ég fjalla raunar aðeins um málstað Húmanista í grein dagsins á Múrnum. Ég vorkenni þeim dálítið, þeir komast nánast ekkert að í fjölmiðlum og það tel ég vera hættulegt fyrir lýðræðið.
En er það góð taktík að storma inn í stúdíó til að mótmæla? Tja, hvers vegna ekki. – Nú eru fá mótmæli Íslandssögunnar frægari en þegar hópur róttæklinga ruddist inn í útsendingu Kanasjónvarpsins á sínum tíma og braukuðu og brömluðu.
Á öllum uppreisnum, eru höfuðstöðvar sjónvarpsstöðva í hópi mikilvægustu staðanna – bæði til að verja og hertaka. Muna menn ekki eftir átökunum um sjónvarpsturninn í Vilnius? – Og í Outbreak var Dustin Hoffmann aðaltöffarinn þegar hann ruddist inn í sjónvarpsstöðina til að tilkynna um sjúkdóminn.
Hver er mórallinn með þessu? – Jú, það að ryðjast inn í sjónvarpsstúdíó er töff. – Það að reyna að ryðjast inn í sjónvarpsstúdíó en vera stökkt á flótta af sminkunni, það er ekki töff.
Jamm.