Þegar veðrið er svona eins og það er í Reykjavík, þá á maður helst að liggja í leti og gera ekki rassgat. Er því að heilsa hjá mér þessa stundina? Nei, sko ekki aldeilis!
Á gær fórum við Steinunn og Palli á Næsta bar og drukkum bjór. Þ.e., Steinunn drakk kók en við palli þömbuðum bjórinn ofan í viskýið sem drukkið var heima á Hringbrautinni. – Fyrir áhugamenn um gott viský skal upplýst að við vorum að drekka Bowmore, sem er afbragðsgóður drykkur. Bowmore-flöskuna mína dreg ég fram þegar Palli, Óli Jó eða pabbi gamli koma í heimsókn. Aðrir, s.s. félagi Sverrir, verða yfirleitt að láta sér nægja e-ð aðeins síðra á borð við Chivas Regal. – Sverri væri trúandi til að drekka viský blandað í 7up.
Á Næsta bar hittum við fyrir þá Stefán Jónsson og Þór Steinarsson, ferska af UVG-fundi. Þar höfðu þau verið að leggja á ráðin um mótmæli í tengslum við Falun Gong-málið og þá sérstaklega þá þætti sem snúa að íslenskum stjórnvöldum. Það er býsna aumur kattaþvottur hjá Heimdellingum sem reyna að firra dómsmálaráðuneytið íslenska allri ábyrgð og kenna bara Kínverjum um allt saman. – En það var kannski við öðru að búast í ljósi þess að formaður SUS er aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og ber því stóra ábyrgð á allri vitleysunni.
* * *
Þessar pöbbasetur komu mér í koll í morgun þegar ég skreiddist fram úr kl. 6:10 eftir fjögurra tíma svefn. Óli, pabbi, Sverrir og Raggi Kristins horfðu á leikinn. — Djöfull var Argentínuliðið slakt!
Við Óli erum ennþá saltvondir yfir óförum Frakka og vitum ekki okkar rjúkndi ráð. Með hverjum getum við haldið núna? – Ætli það verði ekki bara eitthvert skítaliðið sem vinnur að lokum?
* * *
Á kvöld verður svo tekið á því í fótbolta úti á Seltjarnarnesi. Verst að eftir svona góðviðrisdaga er yfirleitt kæfandi hiti í íþróttahúsinu. Þetta verður eins og að spila í Kóreu!
Að bolta loknum gleypi ég í mig einhvern mat og síðan förum við Palli að búa til barmmerki fyrir UVG í tengslum við mótmælin, svo hægt verði að dreifa þeim á morgun. – Veit ekki hvernig Palli hefur hugsað sér að útfæra hönnunina, en ég stóla á að merkin verði töff. Palli klikkar sjaldan í hönnuninni. Raunar ætti hann miklu fremur að vinna í þeim geira en að vera í skíta-umbrotsdjobbi hjá Námsmatsstofnun.
Jamm.