Leiðrétting
Sófakomminn Valur Norðri Gunnlaugsson hefur farið þess á leit við mig að ég birti eftirfarandi yfirlýsingu:
Opið bréf á vefsíðu Stefáns Pálssonar, safnvarðar.
ígætu lesendur
Þann tuttugasta þessa mánaðar tengdi Stefán Pálsson undirritaðan við Framsóknarflokkinn. Þetta hefur hann eflaust gert í góðri trú þar sem ég hef gengt samfélagstarfi fyrir húsfélagið í hartnær 3 ár. Þrátt fyrir viðburðaríka en farsæla stjórnsýslu í húsfélaginu þá vil ég koma því á framfæri að ég er ekki framsóknarmaður og er því ekki að fara í framboð á þeirra vegum næsta vor. Einnig þykir mér ólíklegt að Ólafur Jóhannes sé á þeim buxunum þar sem hann hyggur á nám erlendis frá og með næsta hausti.
Hinsvegar verðum við eflaust fremstu menn í stuðningsliði Björns Inga Hrafnssonar ef hann ákveður að koma fram í sviðsljósið fyrir næstu kosningar.
Valur Norðri Gunnlaugsson, formaður húsfélagsins að Hringbrautar 119 (ath. hér hættir fólki oft að ruglast á húsi Reykjavíkurmafíunnar en það er Hringbraut 121 og í augljósri niðurníðslu)
Er Valur og fjölskylda hans beðin hjartanlega asökunar á þessum hræðilegu mistökum. Það er sannkallað TURK 182 að saka menn ranglega um að vera Framsóknarmenn.