Ó, þú fagra veröld!
Hvílík gleði og hamingja! Framarar, án Þorbjarnar Atla, tóku Skagamenn í bakaríið í gær. Framlínan er orðin feykisterk og miðjuspilið gott – Freyr Karlsson, sérstakur uppáhaldsleikmaður minn var til að mynda fínn í gær. En vörnin verður að skána. Ekki hélt ég að ég myndi sakna Sævars Guðjónssonar mikið úr vörninni, en hann myndi styrkja okkur núna. – Þá þurfum við að verða okkur út um varamarkmann. Það er glæfralegt að leika heilt tímabil án varamarkmanns. Hvað ef Gunnar fær rautt spjald? Á Ingvar þá að byrja í marki í næsta leik? Auk þess hefði Gunni gott af samkeppni um stöðuna. Útspörkin hans í gær voru t.d. herfileg á köflum.
Hjá Skagamönnunum var færra um fína drætti. Gunnlaugur var að venju fantagóður í vörninni og Bjarki kann helling í fótbolta, þótt þrekið vantaði. – Skaginn er með betra lið en svo að þurfa að vera í neðsta sæti með 40% búið af mótinu. Þeir munu salla inn stig seinni hluta sumars, en þá þarf baráttan að koma.
* * *
Það er með hreinum ólíkindum að fylgjast með RSS-baráttu Bjarna og Más við Morgunblaðið. Mogginn er fáránlega íhaldssöm stofnun og hugmyndir þeirra um netmál hafa lengst af verið út í hött. – Hvernig í ósköpunum þeir geta komist að þeirri niðurstöðu að RSS-birting sé þeim í óhag er furðulegt, en alveg í takt við annað á þeim bænum.
Már og Bjarni ættu líka að taka öllum staðhæfingum Morgunblaðsmanna um að þeir hafi lögin sín megin með miklum fyrirvara. Fyrir nokkrum misserum komu félagar mínir á legg vefritinu Mogginn.com, sem síðar varð Sleggjan.com. Þeir Morgunblaðsmenn urðu æfir og kröfðust þess að síðan yrði tekin niður, á þeirri forsendu að útgáfufélagið írvakur ætti alheimsrétt á notkun orðsins „Mogginn“ – t.d. hefði Morgunblaðið lengi haldið úti „Myndasögum Moggans“ og „Moggabúðinni“ en þar má kaupa frisbý-diska með Morgunblaðs M-inu.
Þessar staðhæfingar voru vitaskuld út í hött, en Mogga-lénið var samt aflagt vegna þess að írvakur hótaði málaferlum sem hefðu haft í för með sér kostnað og vesen. Fátækir námsmenn keppa ekki svo glatt við lögfræðingaskarans blaðaauðvaldsins.