Kveðjustund í námd
Jæja, þá er undirbúningur fyrir Færeyjaferðina að komast á lokastig. Við leggjum af stað austur á þriðjudagsmorgun en lagt verður úr höfn á fimmtudag. Fram að því þarf ég að klára 101 verkefni í vinnunni, auk annarra verkefna. Það er hræðileg tilfinning að yfirgefa vinnustaðinn í tólf daga. Ef frá er talin dvölin í Skotlandi, þá held ég að ég hafi mest verið viku frá safninu frá því að ég varð fastráðinn þar 1998. – Ég ætla að reyna að stilla mig um að hringja í Sverri á klukkutíma fresti til að tékka á því hvort allt gangi að óskum.
Svo er líka leiðinlegt að fara núna á sama tíma og við Óli Guðmunds og Sverrir erum komnir í svona góðan gír í að stokka upp sýningarsalinn. Ég er að spá í að láta smiðina Knold og Tott smíða millivegg á meðan ég er í burtu, til að hægt verði að byrja að vinna í loftlínubásnum þegar ég kem aftur.
Annars verð ég að hætta að barma mér svona yfir þessu. Steinunn gæti farið að fá það á tilfinninguna að ég nennti ekki með henni, en ekkert er fjær sanni. Það verður frábært að fara til Færeyja, sérstaklega ef við komumst út í Mykjunes. Ég ætla að lesa Glataða snillinga í Norrænu og dusta jafnvel rykið af sögu SEV-Elfjelags Vestmanna, sem er afbragðsgóð bók um raforkusögu Færeyja eftir Jógvan Arge. (Ætli hann sé skyldur Uni Arge fótboltakappa?) – Til að setja okkur enn betur í gírinn ætluðum við að leigja kvikmyndina Barböru á föstudagskvöldið, en hún var ekki til á leigunni. Á staðinn tókum við Woddy Allen-myndina What´s up Tiger Lilly? – Hún var vonbrigði. Djókurinn á bak við það að taka japanska hasarmynd og döbba hana yfir á ensku var bara ekki að standa undir heilli kvikmynd.
Veit ekki hvort ég nenni að blogga frá Færeyjum eða hvort ég hef tíma á morgun til þess. Ef ekki, þá kveð ég bara að sinni!