Rafmagnsnördar leynast víða Ágúst Flygenring

Rafmagnsnördar leynast ví­ða

ígúst Flygenring veltir fyrir sér muninum á ljósastaurunum á Keflaví­kurveginum og annars staðar. Það er augljóst að hann þyrfti að komast í­ heimsókn á Minjasafn Orkuveitu Reykjaví­kur. Á myndasafni okkar má nefnilega finna slatta af ljósmyndum og teikningum af ljósastaurum frá ýmsum tí­mum. Þar á meðal eru bráðskemmtilegar myndir af því­ þegar stillingu ljósastaura var breytt vegna hægri umferðarinnar 1968, þá var nú handagangur í­ öskjunni!

Á safninu eru einnig lí­kön af mismunandi kynslóðum ljósastaura sem útbúin voru fyrir Reykjaví­kursýningu í­ Hagaskólanum 1961. Við sama tækifæri voru útbúnar teikningar af vexti götulýsingarkerfisins frá 1921. Á sýningarsal safnsins má einnig sjá dæmi um natrí­um og kvikasilfurperur lí­kt og notaðar eru í­ stórum ljósastaurum í­ dag. – Þar gæti félagi ígúst fengið að sjá ljósaperurnar af Keflaví­kurvegi í­ náví­gi!

Á andiri safnsins er svo að finna mikinn öndvegisgrip, forláta ljósastaur sem áður var gasstaur.

Að þessu tilefni hefur verið ákveðið að efna til götulýsingargetraunar hér á sí­ðunni. Verðlaunin, sögu Rafmagnsveitu Reykjaví­kur eftir Sumarliða Ísleifsson frá árinu 1996, hlýtur sá er kemst næst réttum svörum. (ígiskanir sendist á stefan.palsson@or.is) – Rétt er að taka það fram að Sverrir Guðmundsson, starfsmaður minn má ekki taka þátt í­ getrauninni.

1. Hvenær voru fyrstu götuljóskerin (steinolí­ulugtir) sett upp í­ Reykjaví­k?

2. Hversu mörg gasljós og gasljósastaurar voru í­ Reykjaví­k þegar gasstöðin tók til starfa árið 1910?

3. Hversu margir rafmagnsljósastaurar eru nú á veitusvæði Orkuveitunnar?

4. Hvenær voru fyrstu umferðarljósin sett upp í­ Reykjaví­k?

5. Hvers vegna mæddi sérstaklega mikið á þeirri deild Rafmagnsveitunnar sem sá um viðhald ljósastaura á árinu 1964?