Líf mitt í símskeytastíl… Úff…

Lí­f mitt í­ sí­mskeytastí­l…

Úff… þá er best að ryðja út úr sér atburðum sí­ðustu daga úr því­ að ég hef ekki komist í­ að blogga í­ tæpa viku. Þetta verður hraðsoðið…

Ferðin mikla

Fór á Hornafjörð á miðvikudag og sneri aftur á föstudag. Þar var ég staddur á farskóla safnmanna, sem var hreinasta snilld. Hornafjörður er skemmtilegur bær og ekki var heldur leiðinlegt að skjótast í­ Skaftafell – lí­klega merkilegasta stað á Íslandi. Athygli vakti að Björn Bjarnason tók þátt í­ dagskránni alla þrjá dagana, sem er afar óvenjulegt fyrir stjórnmálamann. Yfirleitt stinga þeir inn nefinu í­ klukkutí­ma og eru svo roknir. – Stór plús í­ kladdann hjá Birni!

Farsí­mahringingar dauðans

Á farskólanum sannaðist það enn og aftur, að fólk á ekki að vera með flóknar og sniðugar GSM-hringingar. Hvað er að því­ að eiga sí­ma sem hringir: „ring-ring“ eða „bánk-bánk“? Það er kannski voða gaman að vera með sovéska þjóðsönginn, Gleðibankann eða Like a Virgin með Maddonnu sem hringingu í­ góðra vina hóp, en glansinn fer nokkuð af því­ þegar skroppið er fram í­ kaffi meðan á fyrirlestri stendur – sí­minn skilinn eftir í­ fundarsalnum og svo hringir hann stanslaust í­ fimm mí­nútur meðan allir fundargestir eru að verða brjálaðir.

Splatter í­ Regnboganum

Á laugardagskvöldið stóðum við Steinunn frammi fyrir því­ að velja á milli þess að gerast sófakartöflur yfir sjónvarpsdagskrá frá helví­ti (Spy Hard-viðbjóður á RÚV) eða vera menningarleg. Tókum seinni kostinn og fórum á „Húsfélagið“, gamanmynd á spænsku kvikmyndahátí­ðinni. Hún var fí­n, en kolsvört.

Á Regnboganum hittum við Kollu (sem virðist vera hætt að blogga) og Elí­as Daví­ðsson (sem er nokkurs konar bloggari). Elí­as verður ví­st með fund í­ Norræna húsinu á miðvikudaginn.

Klám og subbuskapur

Lét loksins verða af því­ að kaupa Porno eftir Irvine Welsh. Hún stefnir í­ að bera nafn með rentu. Ég er ekki alveg að átta mig á því­ hvort höfundurinn telur sig vera að afbyggja mýtur klámiðnaðarins eða hvort aðalkvenpersónan í­ bókinni byggist á blautum draumum hans frá unglingsárunum. Hallast fremur að því­ sí­ðara.

Gleði og kátí­na

Hóhóhó… það var æðislegt að sjá Framara vinna FH 5:4 í­ fáheyrðum leik í­ gær. Hvenær ætli leikur hafi sí­ðast farið 5:4 í­ efstu deild hér á landi? Nú er stefnan tekin á Akureyri á laugardaginn kemur. Þorbjörn Atli er snillingur!

Bakverkir og vöðvabólga

500 barmmerki búin til í­ gær. Það er of mikið í­ einu, hvenær ætlar mér að lærast þetta. Ef svo fer sem horfir munum við Palli ekki koma miklu öðru í­ verk næstu mánuðina en að þrykkja út barmmerkjum. Það vill þó til að við höfum aðgang að nægu ókeypis vinnuafli.

Mótsögn?

Það er enginn hörgull á persónuleikaprófum á netinu. Hjá Siggu bleiku má sjá niðurstöður hennar úr prófinu: „Which Secret Fetish are You?“. Niðurstaðan hennar var: „Exhibitionism“. Hvernig getur sýnisþörf verið leynilegur eiginleiki? Ég er ekki að skilja…

Lokaorð?

Jamm.