Fyndnasta skrítla í heimi
Sko, áður en lengra er haldið vil ég taka það fram að ég legg ekki í vana minn að setja skrítlur á þessa síðu. Mér finnst skrítlur einfaldlega ekki mjög skemmtileg tegund af fyndni. Þær eru leið ófyndna mannsins til að vera sniðugur – lærð rulla sem hver sem er getur farið með. Slöppustu tækifærisræðumennirnir grípa til skrítla, þeir sem eru virkilega góðir spila inn á salinn. Þeir þurfa ekki handrit.
Nema hvað. Ég ætla samt sem áður að setja hér inn eina skrítlu og það ekki hvaða skrítlu sem er, heldur fyndnustu skrítlu í heimi. (Enda væri annað óviðeigandi hjá besta og frægasta bloggara landsins.) Skrítlan er á þessa leið:
Tveir veiðimenn eru á gangi í skógi þegar annar þeirra hnígur niður. Augu hans eru stjörf og engin merki um andardrátt. Félagi hans grípur strax gemsann sinn og hringir í 112. Hann hrópar: „Félagi minn er dauður! Hvað á ég að gera?“ – „Róaðu þig niður félagi“, segir starfsmaður Neyðarlínunnar, „Byrjaðu á að ganga úr skugga um að hann sé örugglega dauður.“ Það heyrist þögn í símanum, svo skothvellur. Veiðimaðurinn kemur aftur í símann og segir: „Búinn að því! Hvað geri ég næst?“
Hmmm… finnst fólki þetta ekki sniðug skrítla? Á það minnsta segjast vísindamenn hafa sýnt fram á að þetta sé fyndnasti brandari í heimi eftir geysimiklar rannsóknir á skopskyni íbúa Jarðarinnar. – Ekki er öll vitleysan eins!
* * *
Gleymdi að svara Kettinum og tæknisöguþraut hans. Hann er að sjálfsögðu að spyrja um tilraunir Karls mikla til að gera skipaskurðinn „Fossa Carolina“ milli ánna Main og Dónár (sem Páll Benediktsson kallar raunar „Danjúb“)…