írni Johnsen og þingframboðið
Óskaplega fer það í taugarnar á mér þegar fjölmiðlar éta hver upp eftir öðrum bullfréttir sem enginn fótur er fyrir.
Nú síðast er hver fréttin búin að reka aðra um mögulegt þingframboð írna Johnsen; að uppstilling en ekki prófkjör hafi orðið ofan á hjá íhaldinu á Suðurlandi til að bola honum burtu eða að hann hafi ekkert gefið út á framboðsmál á e-u kjördæmisráðsþingi.
Vissulega væri það saga til næsta bæjar ef írni væri á leiðinni í framboð, en slíkt er ekki og hefur aldrei verið í kortunum. ístæðan er einfaldlega sú að írni væri ekki kjörgengur þar sem hann hefur ekki setið af sér dóminn, né fengið honum aflétt að einhverju eða öllu leyti. Á meðan svo er, þá er tilgangslaust að velta því fyrir sér á einn veginn eða annan hvort írni sé á leiðinni í framboð – HANN EINFALDLEGA GETUR ÞAí EKKI…
Og hættið svo að skrifa forsíðufréttir um þetta í Fréttablaðið ! ! !
* * *
Á kvöld er stefnan tekin á undirbúningsfund fyrir 11. október. Eins og allir þeir sem rambað hafa inn á Múrinn í dag ættu að vita, þá mun eitthvað mikið gerast þann 11. okt. – Fylgist spennt með!
* * *
Framararnir fengu Þór í 16-liða úrslitunum í bikarnum. Á maður að mæta og sjá Safamýrarstórveldið ná fram hefndum? Ekki verður leikurinn í það minnsta leiðinlegri eða lélegri en síðasta viðureign þessara liða!
Önnur samviskuspurning – ætti ég að mæta á landsleikinn gegn Skotum? Verandi sá Skotavinur sem ég er, þá færi illa á öðru – en á hinn bóginn er á nippinu að maður tími þessu. Einkum þar sem ég er farinn að lifa á sníkjum frá Steinunni fram að næsta kreditkortatímabili. (Steinunn fær engan tengil hér í refsingarskyni fyrir að hafa ekki bloggað í marga daga…)