Fokkíng Njarðvíkurskóli…
Urg! Stökk á lappir alltof snemma til að geta almennilega undirbúið að taka á móti gríslíngum úr Valhúsaskóla sem áttu að koma fljótlega upp úr kl. 8. Kom í vinnuna fúll, pirraður, svangur og úfinn. Byrjaði daginn á að líta á skráningarlistann og sá að þar var engan Valhúsaskóla að finna heldur 10. bekkinga úr Njarðvík sem eiga að mæta kl. 9:30!
Þetta er ömurlegt af tveimur ástæðum:
a) Ég vaknaði a.m.k. hálftíma of snemma og verð nú að dóla mér í tómu iðjuleysi og leiðindum.
b) Ég er slappur í að kenna 10. bekkingum – kann engin af trikkunum hans Óla vinnufélaga og er bara almennt til ama.
Ég kenni Njarðvíkingunum um þetta allt saman.
* * *
Getur það verið tilviljun að sama dag og landsins besti og frægasti bloggari skrifar hugleiðingu um kjörgengi írna Johnsen skuli fréttastofa Sjónvarps birta fréttaskýringu um málið? Getur verið að fréttamenn séu almennt að létta sér vinnu sína með því að lesa þessa síðu – vitandi að ég er með puttann á púlsinum í öllum helstu þjóðmálunum?
Hvers vegna hafa þá ekki birst fleiri úttektir á gengi Luton Town í fréttatímanum?
* * *
11. október verður mögnuð skemmtun!