Má þetta? Jæja, þetta fór

Má þetta?

Jæja, þetta fór nú öllu betur en á horfðist með grí­slingana úr Njarðví­kunum. Þau voru hress og áhugasöm og ég skemmti mér konunglega við kennsluna – einkum var skemmtilegt að setja einn á Van de Graaf-hraðalinn og biðja svo annan um að rétta honum rörbút. – Það neistaði rækilega á milli þeirra…

En andskotakornið – hafa unglingar ekki breyst frá því­ að maður var sjálfur svona krí­li? Þarna voru smástelpur með húðflúr á maganum og hvaðeina. Má það? Geta 15 ára krakkar fengið húðflúr eins og ekkert sé sjálfsagðara?

Á Hagaskóla í­ gamladaga hefði a.m.k. engum komið til hugar að fá sér húðflúr – svo mikið er ví­st.

* * *

Er farinn að fá í­ magann út af spurningakeppni – það hefur ekki gerst í­ mörg ár. Að þessu sinni er ég þó ekki keppandi – nema óbeint. Ég féllst nefnilega á að vera „vinurinn við sí­mann“ hjá kunningja mí­num sem er að mæta hjá Þorsteini Joð. Sjitt, ég er skí­thræddur að fokka þessu upp og kosta drenginn þannig stórfé. – Vonandi kemst hann ekki í­ stólinn eða hringir í­ einhvern hinna ráðgjafanna…