Æsast leikar
Þá er farið að styttast verulega í að ég tilkynni um val mitt á næstbesta og -frægasta bloggara landsins. Eflaust mun það val koma mörgum á óvart – en stjórnmál eru jú einu sinni list hins mögulega.
* * *
Ormurinn fer vonandi bráðum að hressast, enda þarf hann að mæta í kvöld til fundar við stjörnuglópa. Hver veit nema að ég endi sem stjörnufræðinörd eftir allt saman. Það væru svo sannarlega óvænt örlög!
* * *
Skammarbréf reiðu konunnar í Velvakanda í dag er kostulegt – sérstaklega þegar hún lýsir því að skellt hafi verið á hana á skiptiborði íÚ. Munu Jóhanna og Þórhallur bjóða henni í þáttinn til að rekja sín sjónarmið?
* * *
Hápunkturinn í Morgunblaðinu er þó að venju Lagnafréttir í Fasteignablaðinu, sem áður hefur verið fjallað um á þessari síðu. Enn veltir pistlahöfundur sér upp úr hinum blóðugu átökum sem staðið hafa um plastefni í lagnakerfum um áratuga skeið:
OF SNEMMT er að fullyrða að „þrjátíu ára stríðinu“ sé lokið en nú hafa andstæðingar plastlagna beðið sinn stærsta ósigur hérlendis og var sannarlega tími til kominn.
Það er Orkuveita Reykjavíkur sem nánast veitir þeim náðarhöggið þegar hún tekur þá ákvörðun að frá og með þessu hausti, anno 2002, verði allar heimtaugar á hennar hitaveitusvæði lagt úr pexplast-rörum sem dregin verða í önnur plaströr, kjarnarör í kápurör, eða rör-í-rör kerfi í sinni bestu mynd.
Það er sjálfsagt að endurtaka það að þetta á við heimtaugar hitaveitu, lögn fyrir vatn sem getur farið allt upp í 85°C hita og 10 bara þrýsting.
Er nema von að ýmsum detti í hug vottunarblaðið frá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins þar sem stendur að hiti vatns í pexplaströrum megi ekki fara upp fyrir 70°C hita, en ekkert minnst á þrýstinginn svo illgirnislega séð má ætla að þessi vottun nái aðeins til vatns sem er þrýstingslaust.
Því miður verður þá ekkert rennsli svo slíkt kerfi kemur að litlu gagni.
Og hvað segja byggingarfulltrúinn í Reykjavík og hans menn? Þeir hafa þvælst fyrir notkun plastlagna í byggingum í Reykjavík í áratugi, hvað segja þeir nú?
Ekkert einkastríð
Sumir virðast halda að hér í þessum pistlum sé háð langvarandi einkastríð gegn ákveðnum stofnunum og embættismönnum, sem hafa mikið vald í lagnamálum þjóðarinnar, en svo er alls ekki.
Það sem hér birtist og hefur birst og túlka má sem gagnrýni á þessa menn og stofnanir byggist á spakmælinu „svo sem þér sáið svo munuð þér og uppskera“.
Þeir hafa verið að sá í áratugi og uppskeran er gagnrýni sem á fullan rétt á sér.
…
Nú hefur Orkuveita Reykjavíkur tekið af skarið, blásið á „páfaherinn“ og látið skynsemi, hagkvæmni og raunverulegar tæknilegar upplýsingar ráða, tekið mið af tvennu; í fyrsta lagi af staðreyndum sem fáanlegar eru frá virtustu rannsóknarstofnunun í Evrópu og í öðru lagi af þrjátíu ára reynslu af notkun pexplast-röra hérlendis og þetta síðarnefnda er kannski ekki síst athyglisvert.
Þetta er nokkuð sem „páfaherinn“ hefur ekki mátt heyra minnst á; að kanna pex-rör sem hafa verið í notkun hérlendis á hitveitusvæðum vítt og breytt um landið, þar sem rekja má hverskonar vatn hefur verið notað allan tímann.
En nú ættu allir að slíðra sverðin og fara að dæmi Orkuveitu Reykjavíkur og láta skynsemina ráða.
Var ekki einhvers staðar sagt að öll dýrin í skóginum ættu að vera vinir?
Og hafið þið það – páfaher!