Sundurlaust
Skemmtilegt þetta múmínálfaæði sem tröllríður í bloggheimum. Samtal Snúðs og Snabba sem Kristbjörn Grænlandsfari rifjar upp er t.d. hrein snilld. Snabbi er einhver besta andhetja bókmenntasögunnar og hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég er meira að segja ekki fjarri því að hann sé eftilætispersónan mín úr múmínálfunum. Aðrar persónur sem sterklega koma þar til greina eru Bísamrottan (sem ég kýs að líta á sem kvenpersónu) og Morrinn. Morrinn er hrikalega flottur óvættur.
* * *
Beta buff sá Casablanca í fyrsta sinn í gær. Ekki deili ég alveg aðdáun hennar á myndinni – fannst hún heldur tilgerðarleg. Hins vegar tengist uppáhalds-kvikmyndakjúríosítetið mitt þessari mynd.
Þannig er mál með vexti, að stórmyndin „Barb Wire“ með Pamelu Anderson tekur að öllu leyti upp söguþráðinn úr Casablanca, með þeirri undantekningu þó að höfð eru skipti á kynjahlutverkum þar sem Barb, persóna Pamelu í myndinni gegnir sama hlutverki og persóna Humphrey Bogarts. – Það er svalt!
Jamm