Sko…
…ætli það sé ekki best að senda megnið af bloggurum landsins til sálfræðings, til að raða saman brotunum af sjálfsmyndinni? Eftir Stúdentablaðsgreinina í morgun er annar hver bloggari að velta sér upp úr tilvistafræðilegum pælingum um gildi bloggs eða tapa sér í nostalgíu yfir því hvað það hafi verið gaman í gamla daga þegar hægt var að koma öllum bloggerum fyrir í einu eldhúspartýi. Eftir að hafa barið mig í gegnum allan þennan vaðal hallast ég að því að vera sammála Katrínu varðandi það að blogg og blogglestur sé bara eins og hver önnur sápuópera.
Talandi um sápuóperur – nú hef ég ekki fylgst með Eastenders í marga mánuði og þegar ég hef rambað inn á þáttinn á BBC Prime, þá hef ég ekki kannast við nokkurn mann. Sigga – er eitthvað merkilegt að gerast í seríunni? Ætti ég að byrja að horfa aftur?
* * *
Palli undrast það að fólk meðhöndli símann hans eins og skemmtitæki en ekki öryggistæki.:
Sumir virðast halda að símarnir sem ég svara stundum í, séu einhverskonar skemmtitæki en ekki öryggistæki. Af þessu leiðir að fullt af fólki hringir í mig á öllum tímum sólarhringsins til þess að segja ekki neitt.
En ekki hvað? ístæðan fyrir því að það er EKKI hægt að nota símann sem öryggistæki er einmitt sú að Páll svarar ekki nema endrum og eins. Fyrir vikið er bara hægt að nota hann sem skemmtitæki til að bögga Pál á asnalegum tímum sólarhringsins.
* * *
Vangavelta dagsins: Hvort er Kit-Kat nammi eða kex?