Grasekkill
Jæja, þá er Steinunn farin til Danmerkur á einhvern norrænan MS-fund og ég verð einn í kotinu fram á mánudagskvöld. Ekki er það gaman.
Þessi einstæðingsskapur er þeim mun minna skemmtilegur í ljósi þess að fyrir vikið lendi ég einn í að flytja alla búslóðina í skottinu á Neista nýrrar aldar – eða hvernig á maður að skilja kveðjusetninguna: „Þú þarft ekkert að vera búinn að flytja ALLT dótið þegar ég kem aftur…“? Til viðbótar við þetta þarf ég líka að reyna að redda leigjanda að íbúðinni (stefan.palsson@or.is) og hugsanlega´finna nýjar bókahillur. – Leiðindi!
* * *
Sigga bleika segir stórmerkilegar fréttir af Eastenders. Það kemur svo sem ekkert á óvart með Jamie og Sonju (Sonja er alveg fáránlega vinsæl persóna í Bretlandi), en að Little Mo sé laus við Trevor eru svo sannarlega tíðindi. Var´hún sem sagt sýknuð af manndrápstilrauninni á sínum tíma? (Svona er hrikalega langt síðan ég hef fylgst með þessu.) En hvað með Janine? Er hún ennþá sama undirförla druslan og áður?
Mér líst bráðvel á að hefja herferð til að pína RÚV til að byrja að sýna Eastenders.
* * *
Luton er á sigurbraut. Liðið er komið í níunda sæti eftir afleita byrjun, en á samt við mikil meiðslavandamál að stríða. Big fat Joe er besti framkvæmdastjórinn í deildinni eins og margsannaðist á árum hans hjá Wimbledon.
En talandi um Wimbledon. Á dögunum komu innan við 1.000 manns á heimaleik hjá þeim í 1. deildinni, sem er að sjálfsögðu met. ístæðan er sú að stjórnendur liðsins ætla að flytja það til steinsteypuparadísarinnar Milton Keynes. Á sama tíma mæta 2-3.000 fyrrum stuðningsmenn Wimbledon á leiki með pöbbaliði í grenndinni sem spilar í hundruðustu deild eða eitthvað álíka og var vant því að leika í skemmtigörðum fyrir framan 10-20 manns. Skrítið!