Þökk sé írmanni.
…fyrir frábæran link á franskar teiknimyndasögur (sem ómenntaði skríllinn sem enga frönsku kann skilur væntanlega ekkert í). írmann snýst til varnar bókunum um Hin fjögur fræknu. Ekki hafði ég áttað mig á því hversu margar bækurnar í þessum bókaflokki eru orðnar. Það er heill haugur óútgefinn!
Nú mana ég írmann til að skrifa menningarpistil um Hin fjögur fræknu á Múrinn. Minna má það nú ekki vera!
(Uppáhalds fjögur fræknu-djókurinn minn er samt í bókinni „Fjögur fræknu og vofan“, þar sem einn peningafalsarinn var rangeygður og prentaði fullkomna peningaseðla að öðru leyti en því að maðurinn á framhliðinni var líka rangeygður. – Af hverju er fyndið að hlægja að rangeyðgum? Hvort héldu menn með Jóni Oddi eða Jóni Bjarna?)
* * *
Á teiknimyndasíðunni hans írmanns má líka sjá myndir af forsíðum allra Palla og Togga-bókanna. Einhver góður maður mætti gera gangskör í að þýða þær og gefa út.
Hvers vegna er svona skrípó ekki selt hér á landi? Mál og menning selur eitthvað af teiknimyndasögum á erlendum málum, en í Nexus eru bara seldar aksjón-teiknimyndasögur en ekki skrípó. Það er fúlt.
* * *
Á leiðinni heim í gær sá ég að búið er að loka Kaffi Kim á Rauðarárstígnum. Kannski gerðist það fyrir löngu síðan, hef ekki fylgst vel með. Ætli það sé verið að taka húsið í gegn? Má ég eiga von á nýjum bar/kaffihúsi í röltfæri við Mánagötuna? Það verður gaman að sjá.
* * *
Annars stefnir í bloggfall hjá mér. Er á leiðinni út úr bænum og kem ekki aftur fyrr en á sunnudag.
Jamm