Færeyjavinur ber af sér sakir
Er ég að einangrast í fílabeinsturni bloggfrægðarinnar? Getur verið að þrátt fyrir göfug fyrirheit sé ég farinn að láta vinsældirnar stíga mér til höfuðs og búinn að gleyma uppruna mínum? Kannski! Á það minnsta les ég ekki nærri eins mikið af bloggsíðum nú og áður fyrr. Sú var tíðin að ég hafði auga með tugum blogga og skoðaði sum jafnvel oft í viku. Nú eru breyttir tímar.
Einn af þeim mönnum sem ég las nokkuð reglulega hér áður fyrr var ígúst Flygenring, sem er geðveikisleg blanda af hægrimanni og sósíalista eins og ég hef áður vikið að. Ég var hins vegar fyrst í morgun að reka augun í að hann hafi verið að hnýta í mig vegna áramótaþáttar Egils Helgasonar. Reyndar er ígúst þarna ekki að finna að því sem ég sagði, heldur klæðaburðinum:
fannst mér dulítið fyndið að hann skartaði peysu með stóru Puma-merki framan á.
Nú á ég engin Puma-föt en svo segir mér hugur að peysan sé Made in Indonesia eða jafnvel Made in Vietnam. Mér finnst nokkuð fyndið að anti-global-Stebbi skuli fyrir það fyrsta ganga í svona sweatshop-peysu og svo skarta henni m.a.s. í sjónvarpi. Hingað til hefur hann mætt í sínum stuttermabolum, yfirleitt með einhverri vel valinni áletrun.
Ég verð að segja að þessi pilla kom mér í opna skjöldu, enda hélt ég nú að mönnum yrði starsýnna á færeyska fánann á fótboltatreyjunni en Puma-merkið, en treyjan góða er vitaskuld búningur færeyska knattspyrnulandsliðsins. (Og í þessum bol ætla ég að vera þegar Íslendingar taka á móti Færeyingum í Laugardalnum næsta sumar.)
En hvar skyldi bolurinn vera framleiddur? Ætli það sé í Víetnam, Nepal eða Hondúras? Nei, því ef marka má upplýsingarnar á miðanum var hann „Made in Europe“.
Nú hefur mér alltaf þótt þessi merking „Made in Europe“ hálf-skringileg og benda til að menn hafi eitthvað að fela. Á mínum huga koma þrjár skýringar til greina:
i) Bolurinn er framleiddur í fátæu Evrópuríki á borð við Búlgaríu, Moldavíu eða Albaníu, sem ekki þykir nógu „fínt“.
ii) Bolurinn er framleiddur í Þýskalandi eða einhverju öðru Evrópulandi þar sem pan-evróisminn er sterkur.
iii) Bolurinn er framleiddur í Víetnam í verksmiðju sem heitir „Europe“. Þetta er gamalt trikk, en lengi vel framleiddu „West-Germany“-verksmiðjurnar í Hong Kong geysilegt magn af leikföngum og smádrasli.
– Óháð þessu öllu saman er það rétt hjá hr. Flygenring að maður á að forðast það að versla við fyrirtæki eins og Puma.
* * *
Þóra systir er byrjuð að blogga. Er það vel.
* * *
Gettu betur byrjar í kvöld á Rás 2. Svenni og Svanhildur sjá um keppnina í ár. Ég er hæstánægður með að Svenni hafi orðið fyrir valinu og mun því fylgjast stíft með keppninni í ár. Og það er óhætt að segja að hún fari af stað með látum, því í kvöld keppa sex skólar – MA (sigurvegarar 1991 og 1992); Versló fjórum sinnum hefur farið í úrslit; Borgarholt (úrslit 2001); írmúli (margoft í undanúrslit) og Kvennaskólinn (1-2 í fjórðungsúrslit).
Ég ætla alveg að stilla mig um að spá fyrir um úrslit, en ætli við fáum ekki a.m.k. eina keppni í bráðabana? Minna má það nú varla vera…