Hverjar eru líkurnar…
Eins og allir vita sem horfa á bandarískar bíómyndir eða sjónvarpsþætti eru bara 10.000 símanúmer í Bandaríkjunum, því ef marka má Hollywood byrja ÖLL símanúmer á 555-. Það þýðir að ekki eru eftir nema 10.000 valmöguleikar, frá 555-0000 upp í 555-9999.
Á Íslandi eru hins vegar miklu fleiri númer í pottinum, enda geta símanúmer hérlendis haft hina og þessa upphafsstafi. Það er því mun ólíklegra að maður slái inn símanúmer af handahófi en fái samband við einhvern sem maður þekkir. – Þannig er bara ekki gert. Eða hvað?
Fyrr í dag þurfti ég að hringja í ritara yfirmanns míns til að negla niður tímasetningu á fundi. Á staðinn fyrir að slá númerinu upp í fyrirtækisskránni sló ég það inn eftir minni. Mikil var því undrun mín þegar svarað var í apóteki úti í bæ og maðurinn í símanum var Atli, fyrrverandi mágur minn. Nú hef ég aldrei hringt í Atla í vinnuna – og vissi raunar ekkert um það hvar hann ynni. Það kom eitthvað fát á mig þannig að ég kvaddi og skellti á án þess að kynna mig. – Nú situr Atli örugglega einhvers staðar og spáir í því hvort hann sé virkilega svo fruntalegur í símsvöruninni að fólki fallist hendur og leggi á í staðinn fyrir að panta smyrsl og hóstamixtúrur.
* * *
Spurningakeppnin heldur áfram í kvöld. Þar verður meðal annars stórviðureign, þar sem keppa liðin sem mættust í undanúrslitum í fyrra: Menntaskólinn við Sund og Norðfjörður. Litlar mannabreytingar munu vera í liðum, þannig að búast má við hörkukeppni.
Hvanneyringar voru ekki síður öflugir í þessari keppni í fyrra, en lið þeirra féll út fyrir MS í bráðabana í fjórðungsúrslitum. Á kvöld mætir Hvanneyri hins vegar Fjölbraut í Garðabæ sem mig minnir að hafi tví- eða þrívegis komist í fjórðungsúrslit, þ.á.m. í fyrra.
Síðasta viðureignin er svo Menntaskólinn að Laugarvatni gegn Laugum. Þessi tvö lið mættust í sjónvarpinu í kostulegri keppni árið 1994. Það var önnur sjónvarpskeppni Ólafs Bjarna Guðnasonar sem dómara, en í fyrstu keppninni hafði hann skellt alltof þungri keppni á MA og VMA (þar sem Steinþór Heiðarsson Múrverji var meðal keppenda) – börnin gátu engu svarað og Ólafur Bjarni bætti úr því með því að bjóða upp á einhverja léttustu sjónvarpskeppni sögunnar, með þeim afleiðingum að ML rakaði inn stigunum. – Laugalimir voru þarna að keppa í sjónvarpi annað árið í röð, en lið þeirra var skipað litríkum keppendum.
Ójá – minningar – minningar…
(Dísös hvað ég er mikið spurningakeppnisnörd!)