Hrekkur tölvunördsins
Jæja, þá liggur fyrir að okkur Múrverjum tókst að plata samræmdu vefmælinguna. Þannig er mál með vexti að við settum sakleysislegan tengil í einni fréttinni okkar yfir á Jólavefinn, sem var einhver veðsti vefurinn í samræmdu vefmælingunni, enda er ekkert að finna á þeirri síðu en niðurtalningu í jólin.
Eins og búast mátti við, ruku heimsóknirnar yfir á jólavefinn upp úr öllu valdi, eða eins og segir á Teljara.is: Vefurinn jól.is er eðli málsins samkvæmt lítill um þessar mundir. Hann stækkaði þó um 91,8% í vikunni og 606 gestir gátu því brosað yfir skemmtilegri orðsendingu, sem finna má á vefnum. Þessi prósentuaukning hefði átt að duga til að gera Jólavefinn að hástökkvara vikunnar, en þess í stað ákváðu aðstandendur Teljara.is að velja vísindavefinn vegna mestrar nettóaukningar. – Gott og vel.
En þetta er upplífgandi fyrir okkur Múrspaða. Að sakleysislegur linkur í frétt hjá okkur, sem ekki var uppi nema í þrjá daga af þeim sjö sem vefmælingin nær til, gefi u.þ.b. 350 smelli á Jólavefin er prýðilegt. Til að setja þessar tölur í samhengi má hafa í huga að Tíkin, eina pólitíska vefritið sem tekur þátt í samræmdri vefmælingu var í síðustu viku að fá u.þ.b. 130 gesti á dag að meðaltali.
Hvað ætli margir lesi þetta blogg? – Einu sinni var ég með teljara, svo eyddi ég honum óvart út í misgripum þegar ég var að setja upp þetta dáindisfallega fjólubleika útlit. Hef ekki nennt að setja það inn aftur.
Jamm.