Proppé í uppsveiflu
Á gærkvöld var hópferð til Keflavíkur til að samfagna með Kolbeini Proppé og félögum í VG. Þar var nefnilega verið að opna kosningaskrifstofu á fínasta stað. Hið ágætasta húsnæði, þar sem kunnugir segja að áður hafi verið til húsa netkaffihús.
Það var hörkugott hljóð í fólki þarna og þó allir átti sig á því að baráttan verði hörð – þá er ég handviss um að Kolbeini á eftir að skola inn á þing. Af því að ég er tölfræðinörd fór ég að reikna út úr skoðanakönnun Fréttablaðsins fyrir Suðurkjördæmið. Samkvæmt henni er síðasti kjördæmakjörni þingmaðurinn með 9,175% á bak við sig en útlit er fyrir að 7,5 til 8% atkvæða gefi uppbótarsætið. – Proppé fer yfir 9% þegar hann verður búinn að kynna sig betur. Ekki spurning!
* * *
Stúdentaráðskosningarnar eru víst byrjaðar. Það að kosið sé á tveimur dögum, eins og gert hefur verið undanfarin ár, er mikil framför frá því sem áður var. Ég og Þorsteinn Davíðsson börðumst mjög fyrir þessari tilhögun eftir að við lentum saman í kjörstjórn. Þá töldu stúdentaráðsliðar að tveggja daga kosning væri „ömurleg“ og myndi „eyðileggja stemninguna“ – en annað hefur víst komið í ljós.
Annars átti ég leið um Háskólann á dögunum og sá framboðslista hreyfinganna þriggja auglýsta á plakötum. Kannaðist við nokkra frambjóðendur Röskvu og Háskólalistans – bæði persónulega og af afspurn. Þá kannast ég aðeins við Jarþrúði Vökuoddvita frá því í gamla daga.
Þessi Háskólalisti er miklu öflugri en sérframboð fyrri ára. Það er alveg ljóst að hann fær fulltrúa, ég trúi bara ekki öðru. Væri ekki bara fínt að fá samstjórn Háskólalistans og Röskvu?
Háskólalistinn setur breytt kosningakerfi á oddinn. Ég er ekki sannfærður um að þeirra útfærsla sé sú eina rétta, en jafnframt er alveg ljóst að kosningakerfið í Háskólanum er liðónýtt og einstaklega ólýðræðislegt. Það þekki ég sem gamall kjörstjórnarmaður.
* * *
Fram tapaði í handboltanum en Luton vann Plymouth. Það var geysilega mikilvægur sigur þar sem Plymouth var rétt á hælum minna manna. Eftir afleitt tap um helgina er Luton þar með komið aftur í 7da sæti, einu stigi á eftir QPR og rétt á eftir Bristol City. Því miður eigum við ekki lengur leikinn til góða, en næsta helgi mun skipta miklu máli. Notts County á útivelli! – Það er raunar martraðarkenndur leikur fyrir Luton-menn vegna slæmra minninga. Um árið fórum við niður úr efstu deild eftir að hafa mistekist að vinna Notts Co. á útivelli í síðustu umferð, þar sem Notts Co. var þegar fallið. Ef sá leikur hefði unnist hefði Luton leikið í fyrstu úrvalsdeildinni og peningastaðan væri líklega allt önnur í dag.
* * *
Miðnefndarfundur í kvöld. Stórar ákvarðanir fyrirliggjandi.
Jamm.