Vinslit í vændum? Grímur Atlason

Vinslit í­ vændum?

Grí­mur Atlason er góður drengur. Raunar ætti ekki að þurfa að taka það fram, enda er hann í­ 4. sæti hjá VG í­ Rví­k. og því­ góður drengur samkvæmt skilgreiningu.

Grí­mur er stuðningsmaður Liverpool og hefur sem slí­kur margsótt um inngöngu í­ stuðningsmannaklúbb smáliða sem við nafni minn Hagalí­n erum að leggja drög að. Þessari beiðni hefur í­trekað verið hafnað, enda getur Liverpool seint talist smálið. Skí­talið kannski – en aldrei smálið.

Hins vegar hefur Grí­mi boðist innganga sem stuðningsmaður Mansfield, sem hann heldur einmitt lí­ka með. Og þar stendur hní­furinn í­ kúnni. Á kvöld er nefnilega stórleikur í­ 2.deildinni – Mansfield : Luton. Ef sá leikur tapast, má telja vonir okkar Luton-manna um sæti í­ umspili úr sögunni. Raunar myndi jafntefli setja slí­ka drauma í­ mikið uppnám lí­ka. Við verðum hreinlega að vinna!

Ef helv. Mansfield tekur leikinn í­ kvöld, þá erum við Grí­mur skildir að skiptum. Svo einfalt er það nú bara.

* * *


Þú ert Halldór ísgrí­msson:

Þú átt ofsalega bágt, alltaf, enda
finnst þér allir vera vondir við þig. Mæddu dádýrsaugun geta þó fleytt þér
áleiðis í­ pólití­kinni. Sveitta efrivörin hinsvegar ekki.

Taktu „Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?“ prófið